Sendiboðar frá Babýlon

1 Um þetta leyti sendi Meródak Baladan Baladansson, konungur í Babýlon, bréf og gjöf til Hiskía af því að hann hafði frétt af veikindum hans og lækningu. 2 Hiskía gladdist yfir þessu og sýndi sendiboðunum fjárhirslu sína, silfrið, gullið, balsamið og úrvalsolíuna, vopnabúr sitt og allt annað sem varðveitt var í fjárhirslu hans. Í höll hans eða ríki var enginn sá hlutur sem hann sýndi þeim ekki.
3 Jesaja spámaður kom þá til Hiskía konungs og spurði: „Hvað vildu þessir menn og hvaðan komu þeir?“ Hiskía svaraði: „Þeir komu frá fjarlægu landi, alla leið frá Babýlon.“ 4 Þá spurði Jesaja: „Hvað sáu þeir í húsi þínu?“ Hiskía svaraði: „Þeir sáu allt sem er í húsi mínu. Í fjárhirslum mínum er enginn sá hlutur sem ég sýndi þeim ekki.“
5 Þá sagði Jesaja við Hiskía: „Hlýddu á orð Drottins allsherjar: 6 Sá tími mun koma að allt sem er í húsi þínu og allt sem forfeður þínir hafa safnað til þessa dags verður flutt til Babýlonar. Ekkert verður eftir, segir Drottinn. 7 Nokkrir af sonum þínum, niðjum þínum, sem þú átt eftir að eignast, verða teknir og gerðir að herbergisþjónum Babýloníukonungs.“ 8 Hiskía svaraði Jesaja og sagði: „Gott er það orð sem þú hefur flutt mér frá Drottni.“ En hann hugsaði með sér: „Það verður þó friður og festa á meðan ég lifi.“