(Hann)

1Hve fögur ertu, ástin mín, hve fögur,
og augu þín dúfur
undir andlitsblæjunni.
Hár þitt er sem geitahjörð
sem rennur niður Gíleaðfjall,
2tennur þínar ær í hóp,
nýrúnar og baðaðar,
allar tvílembdar
og engin lamblaus.
3Varir þínar eru sem skarlatsborði
og munnur þinn yndislegur,
gagnaugun eins og sneitt granatepli
undir andlitsblæjunni.
4Háls þinn er eins og turn Davíðs
sem vopnum er raðað á,
þar hanga þúsund skildir,
öll hertygi garpanna.
5Brjóst þín eru eins og tveir hindarkálfar,
dádýrstvíburar
að leik meðal lilja.
6Þegar kular í dögun
og skuggarnir flýja
mun ég halda til myrruhólsins
og reykelsishæðarinnar.
7Öll ertu fögur, ástin mín,
lýtalaus með öllu.
8Komdu með mér frá Líbanonsfjalli, brúður,
með mér frá Líbanonsfjalli,
niður af tindi Amana,
af tindum Senír og Hermon,
frá bælum ljónanna, klettum hlébarðanna.
9Þú hefur rænt hjarta mínu,
systir mín, brúður,
hjarta mínu hefurðu rænt með augnaráðinu einu,
einum hlekk úr hálsfesti þinni.
10Hve yndisleg eru atlot þín, systir mín, brúður,
hve miklu eru atlot þín ljúfari en vín
og angan smyrsla þinna betri en nokkur ilmjurt.
11Hunang drýpur af vörum þínum, brúður,
hunang og mjólk undir tungu þinni
og ilmur klæða þinna er sem angan Líbanonsfjalls.
12Lokaður garður er systir mín, brúður,
byrgður brunnur, innsigluð lind.
13Laut þín sem garður af granateplum,
með gómsæta ávexti,
henna og nardus,
14nardus og saffran,
ilmreyr og kanel,
myrru og alóe
og allar dýrustu ilmjurtir. [
15Þú ert lind í garði,
lifandi vatn af Líbanonsfjalli.

(Hún)

16Vakna, norðanvindur,
kom, sunnanblær,
anda á garð minn
svo að ilmur hans berist.
Elskhugi minn, komdu í garð þinn
og njóttu dýrustu ávaxta hans.