1 Til söngstjórans. Með makalatlagi.[ Davíðsmaskíl.
2Heimskinginn segir í hjarta sínu:
„Enginn Guð.“
Ill og andstyggileg er breytni þeirra,
enginn gerir það sem gott er.
3Drottinn horfir á mennina
af himnum ofan
til þess að sjá hvort nokkur sé hygginn,
nokkur sem leiti Guðs.
4Allir hafa þeir vikið af leið,
allir eru spilltir,
enginn gerir það sem gott er, ekki neinn.
5Skilja þeir þá ekkert, þessir illvirkjar?
Þeir seðja sig á lýð mínum, eta hann sem brauð
og ákalla ekki Guð.
6Síðan skjálfa þeir af hræðslu
þar sem ekkert er að óttast
því að Guð tvístrar beinum þeirra
er réðust gegn þér.
Þú lætur þá verða til skammar
því að Guð hefur hafnað þeim.
7Ó, að Ísrael berist hjálp frá Síon.
Þegar Drottinn snýr við hag lýðs síns
mun Jakob fagna, Ísrael gleðjast.