Grundvöllurinn er Kristur

1 Ég gat ekki, systkin,[ talað við ykkur eins og við andlega menn heldur eins og við menn sem sjá ekki nema sjálfa sig, eins og við ómálga börn í Kristi. 2 Ég gaf ykkur mjólk að drekka, ekki fasta fæðu því að enn þolduð þið það ekki. Og þið þolið það jafnvel ekki enn 3 því að enn þá lifið þið í sjálfshyggju. Það er metingur og deilur á milli ykkar. Sýnir það ekki að þið látið ekki andann leiða ykkur og hegðið ykkur eins og hverjir aðrir menn? 4 Þegar einn segir: „Ég fylgi Páli,“ en annar: „Ég fylgi Apollós,“ eruð þið þá ekki eins og þið voruð áður?
5 Hvað er þá Apollós? Já, hvað er þá Páll? Þjónar sem hafa leitt ykkur til trúar og það eins og Drottinn hefur gefið hvorum um sig. 6 Ég gróðursetti, Apollós vökvaði en Guð gaf vöxtinn. 7 Þannig skiptir það engu hver gróðursetur eða hver vökvar. Það er Guð sem skiptir máli, hann gefur vöxtinn. 8 Sá sem gróðursetur og sá sem vökvar eru eitt. En sérhver mun fá laun eftir erfiði sínu. 9 Því að samverkamenn Guðs erum við,[ Guðs akurlendi, Guðs hús eruð þið.
10 Sem vitur byggingameistari hef ég lagt grundvöll eftir þeirri náð sem Guð hefur veitt mér en annar hefur byggt ofan á. En sérhver athugi hvernig hann byggir. 11 Annan grundvöll getur enginn lagt en þann sem lagður er, sem er Jesús Kristur. 12 En ef einhver byggir ofan á grundvöllinn gull, silfur, dýra steina, tré, hey eða hálm, 13 þá mun koma í ljós hvernig verk hvers og eins er. Dagurinn mun leiða það í ljós af því að hann opinberast með eldi og eldurinn mun prófa hvílíkt verk hvers og eins er. 14 Ef það fær staðist sem einhver byggir ofan á mun hann fá laun. 15 En brenni það upp mun hann bíða tjón. Sjálfur mun hann komast af en þó eins og úr eldi.
16 Vitið þið eigi að þið eruð musteri Guðs og að andi Guðs býr í ykkur? 17 Ef nokkur eyðir musteri Guðs mun Guð eyða honum því að musteri Guðs er heilagt og þið eruð það musteri. 18 Enginn dragi sjálfan sig á tálar. Ef nokkur ykkar þykist vitur í þessum heimi verði hann fyrst heimskur til þess að hann verði vitur. 19 Því að speki þessa heims er heimska í augum Guðs. Ritað er:
Hann er sá sem sér við klækjum hinna vitru.
20 Og aftur:
Drottinn veit að hugsanir vitringanna eru fánýtar.
21 Þess vegna stæri enginn sig af mönnum. Því að allt er ykkar 22 hvort heldur er Páll, Apollós eða Kefas, heimurinn, líf eða dauði, hið yfirstandandi eða hið komandi, allt er ykkar. 23 En þið eruð Krists og Kristur Guðs.