1Sæll er sá sem hefur taumhald á tungu sinni
og sorg vegna synda nístir ekki.
2 Sæll er sá sem þarf ei að álasa sér
og þarf ekki að sjá vonir bregðast.

Um auð

3Eigi hentar auðsæld smásálarlegum,
hvert gagn færir auður nískum manni?
4 Sá safnar fyrir aðra sem neitar sér um allt,
ókunnir munu njóta vellystinga af eigum hans.
5 Hverjum skyldi sá góður sem sjálfan sig kvelur?
Aldrei færa eignir slíkum gleði.
6 Enginn er verr settur en sá sem heldur í við sig,
þetta eru gjöld illsku hans:
7 Geri hann vel var það óvart,
illska hans verður að lokum augljós.
8 Illur er öfundsjúkur maður,
hann snýr baki við öðrum og skeytir ei um neinn.
9 Hann sér aldrei nóg koma í sinn hlut,
sál hans visnar af ranglátri ágirnd.
10 Sá níski er spar á brauð
og líður skort við eigið borð.
11 Barnið mitt, unn þér alls góðs sem þú getur
og fær Drottni þá fórn sem honum ber.
12 Minnstu þess að dauðanum dvelst eigi,
þú veist ekki hvenær þú skalt til heljar halda.
13 Gjör vel til vinar áður en þú ert allur,
ver honum svo örlátur sem efni þín leyfa.
14 Neita þér ekki um glaðan dag,
synja þér eigi um saklausa skemmtun.
15 Verður þú ekki að láta öðrum eftir ávöxt erfiðis þíns?
Munu ekki aðrir skipta því með sér sem þú aflaðir?
16 Gef og þigg og njóttu lífsins,
í helju er enga gleði að finna.
17 Allt hold fyrnist sem fat,
lögmál frá örófi alda býður: „Þú skalt deyja.“
18 Eins og blöð á laufguðu tré,
eitt fellur, annað sprettur,
þannig er um kynslóðir manna,
ein deyr, önnur fæðist.
19 Öll mannanna verk hrörna, eyðast
og sá sem þau vann hverfur með þeim.

Hamingjan sem spekin veitir

20Sæll er sá sem iðkar speki
og skerpir skilning sinn í umræðum,
21 íhugar vegu spekinnar í hjarta sínu
og grundar leyndardóma hennar.
22 Fylg þú henni líkt og veiðimaður bráð,
sit fyrir spekinni þar sem hún fer inn.
23 Sá sem gægist á glugga hennar,
leggur við hlustir hjá dyrum hennar,
24 sest að við hús hennar
og rekur tjaldhæla sína í vegg þess,
25 slær tjaldi sínu upp í nánd spekinnar,
þar á hann gott athvarf.
26 Börn sín fær hann henni til verndar,
hvílist undir greinum hennar.
27 Hjá henni finnur hann skjól fyrir sólarbreyskju
og er umvafinn dýrð hennar.