Fyrirmæli

1 Ávíta þú ekki aldraðan mann harðlega heldur uppörva hann sem föður, yngri menn sem bræður, 2 aldraðar konur sem mæður, ungar konur sem systur með allri siðsemi.
3 Heiðra ekkjur sem í raun og veru eru ekkjur. 4 En ef einhver ekkja á börn eða barnabörn, þá læri þau fyrst og fremst að sýna rækt eigin heimili og endurgjalda foreldrum sínum því að það er Guði þóknanlegt.
5 Sú sem er ekkja í raun og veru og á engan að festir von sína á Guð og ákallar hann stöðugt og biður nótt og dag. 6 En hin bílífa er lifandi dauð.
7 Brýn þetta fyrir þeim til þess að þær sæti engu ámæli.
8 En ef einhver sér ekki fyrir skylduliði sínu, sérstaklega sínum nánustu, þá hefur hún afneitað trúnni og er verri en vantrúuð.
9 Ekkja sé ekki tekin á skrá yfir ekkjur nema hún sé orðin fullra sextíu ára, eingift 10 og lofsamlega kunn að góðum verkum. Hún verður að hafa fóstrað börn, sýnt gestrisni, þvegið fætur heilagra, hjálpað bágstöddum og lagt stund á hvert gott verk.
11 En tak ekki ungar ekkjur á skrá. Þegar hvatir véla þær frá Kristi vilja þær giftast 12 og gerast þá sekar um að brjóta sitt fyrra heit. 13 Og jafnframt temja þær sér iðjuleysi, rápandi hús úr húsi, ekki einungis iðjulausar heldur einnig málugar og hlutsamar og tala það sem eigi ber að tala.
14 Ég vil því að ungar ekkjur giftist, ali börn, stjórni heimili og gefi andstæðingunum ekkert tilefni til ills umtals. 15 Nokkrar hafa þegar horfið frá til fylgis við Satan.
16 Ef trúuð kona á fyrir ekkjum að sjá skal hún sjá fyrir þeim, og eigi hafi söfnuðurinn þyngsli af því að hann þarf að geta hjálpað þeim sem eru ekkjur og einstæðar.
17 Öldungar þeir sem veita góða forstöðu séu hafðir í tvöföldum metum, allra helst þeir sem leggja hart að sér við boðun og fræðslu. 18 Því að Ritningin segir: „Þú skalt ekki múlbinda uxann er hann þreskir,“ og: „Verður er verkamaðurinn launa sinna.“
19 Tak þú ekki við kæru gegn öldungi nema tveir eða þrír vottar beri.
20 Ávíta brotlega í viðurvist allra, öðrum til varnaðar.
21 Ég heiti á þig fyrir augliti Guðs og Krists Jesú og hinna útvöldu engla að þú gætir þessa án hleypidóms og gerir ekkert af vilfylgi.
22 Ver ekki of fljótur til að vígja nokkurn mann til þjónustu. Tak eigi heldur þátt í annarra syndum og varðveit sjálfan þig hreinan.
23 Ver þú ekki lengur að drekka vatn heldur skalt þú neyta lítils eins af víni vegna magans og veikinda þinna sem eru svo tíð.
24 Syndirnar hjá sumum mönnum blasa við áður en til dóms kemur en hjá öðrum koma þær síðar í ljós. 25 Á sama hátt eru góðverkin augljós og þau sem eru það ekki munu ekki geta dulist.