1Ávíta þú ekki aldraðan mann harðlega, heldur áminn hann sem föður, yngri menn sem bræður,2aldraðar konur sem mæður, ungar konur sem systur í öllum hreinleika.3Heiðra ekkjur, sem í raun og veru eru ekkjur.4En ef einhver ekkja á börn eða barnabörn, þá læri þau fyrst og fremst að sýna rækt eigin heimili og endurgjalda foreldrum sínum, því að það er þóknanlegt fyrir augliti Guðs.5Sú sem er í raun og veru ekkja og er orðin munaðarlaus, festir von sína á Guði og er stöðug í ákalli og bænum nótt og dag.6En hin bílífa er dauð, þó að hún lifi.7Brýn þetta fyrir þeim, til þess að þær séu óaðfinnanlegar.8En ef einhver sér eigi fyrir sínum, sérstaklega heimilismönnum, þá hefur hann afneitað trúnni og er verri en vantrúaður.9Ekkja sé ekki tekin á skrá yfir ekkjur nema hún sé orðin fullra sextíu ára, eingift10og lofsamlega kunn að góðum verkum. Hún verður að hafa fóstrað börn, sýnt gestrisni, þvegið fætur heilagra, hjálpað bágstöddum og lagt stund á hvert gott verk.11En tak ekki við ungum ekkjum. Þegar þær verða gjálífar afrækja þær Krist, vilja giftast12og gerast þá sekar um að brjóta sitt fyrra heit.13Og jafnframt temja þær sér iðjuleysi, rápandi hús úr húsi, ekki einungis iðjulausar, heldur einnig málugar og hlutsamar og tala það, sem eigi ber að tala.14Ég vil því að ungar ekkjur giftist, ali börn, stjórni heimili og gefi mótstöðumanninum ekkert tilefni til illmælis.15Nokkrar hafa þegar horfið frá til fylgis við Satan.16Ef trúuð kona á fyrir ekkjum að sjá, skal hún sjá fyrir þeim, og eigi hafi söfnuðurinn þyngsli af, til þess að hann geti veitt hjálpina þeim, sem ekkjur eru og einstæðar.17Öldungar þeir, sem veita góða forstöðu, séu hafðir í tvöföldum metum, allra helst þeir sem erfiða í orðinu og í kennslu.18Því að ritningin segir: Þú skalt ekki múlbinda uxann, er hann þreskir og verður er verkamaðurinn launa sinna.19Tak þú ekki við kæru gegn öldungi, nema tveir eða þrír vottar beri.20Ávíta brotlega í viðurvist allra, til þess að hinir megi hafa ótta.21Ég heiti á þig fyrir augliti Guðs og Krists Jesú og hinna útvöldu engla, að þú gætir þessa án nokkurs fordóms og gjörir ekkert af vilfylgi.22Eigi skalt þú fljótráðið leggja hendur yfir nokkurn mann. Tak eigi heldur þátt í annarra syndum, varðveit sjálfan þig hreinan.23Ver þú ekki lengur að drekka vatn, heldur skalt þú neyta lítils eins af víni vegna magans og veikinda þinna, sem eru svo tíð.24Syndirnar hjá sumum mönnum eru í augum uppi og eru komnar á undan, þegar dæma skal. En hjá sumum koma þær líka á eftir.25Á sama hátt eru góðverkin augljós, og þau, sem eru það ekki, munu ekki geta dulist.

5.1 Virðing fyrir öldungum 3Mós 19.32
5.5 Festir von sína á Guð Lúk 2.37; 18.7
5.10 Gestrisin Heb 13.2 – þvo fætur Lúk 7.44; Jóh 13.4-15 – hin heilögu Róm 1.7+
5.13 Iðjulausar, málugar 2Þess 3.11
5.14 Giftast að nýju 1Kor 7.9
5.17 Öldungar Tít 1.5-9; 1Pét 5.1 – í tvöföldum metum 1Kor 16.18; Fil 2.29; sbr 1Þess 5.12
5.18 Þú skalt ekki … 5Mós 25.4; 1Kor 9.9 – verður launa sinna Matt 10.10; Lúk 10.7; sbr 1Kor 9.14
5.19 Tveir eða þrír vottar 5Mós 17.6; 19.15; Matt 18.16; 2Kor 13.1; Heb 10.28
5.20 Í viðurvist allra Gal 2.14; sbr Ef 5.11
5.22 Vígja Mrk 5.23+ ; Post 6.6+ ; 1Tím 4.14; 2Tím 1.6