Von hinna réttlátu

1 En sálir réttlátra eru í hendi Guðs
og engin kvöl mun ná til þeirra.
2 Í augum heimskingjanna eru þeir dánir.
Brottför þeirra er talin ógæfa
3 og viðskilnaður þeirra við oss tortíming
en þeir eru í friði.
4 Enda þótt þeim væri refsað að mati manna
eiga þeir vissa von um ódauðleika.
5 Eftir skammvinna hirting munu þeir njóta mikillar gæsku
því að Guð reyndi þá
og fann að þeir voru honum maklegir.
6 Eins og gull í deiglu reyndi hann þá
og tók við þeim sem brennifórnargjöf.
7 Á þeirri stundu er hann kemur og vitjar þeirra munu þeir upptendrast
eins og neistaflug í hálmi.
8 Þeir munu dæma þjóðirnar og drottna yfir lýðunum
og Drottinn mun verða konungur þeirra að eilífu.
9 Þeir sem treysta á hann munu þekkja sannleikann
og hinir trúu munu vera hjá honum í kærleika.
Hann mun veita sínum heilögu náð og miskunn
og vitja sinna útvöldu.

Refsing hinna guðlausu

10En hinir guðlausu munu þola refsingu fyrir vélráð sín,
þeir sem smánuðu hinn réttláta og féllu frá Drottni.
11 Vesælir eru þeir sem fyrirlíta speki og aga.
Von þeirra er tál, erfiðið fánýtt
og verkið gagnslaust.
12 Konur þeirra eru heimskar,
börn þeirra vond
og bölvað þeirra kyn.

Umbun dygðarinnar

13Sæl er óbyrjan sem óflekkuð er
og aldrei hefur sængað í synd.
Hún mun hljóta umbun þegar Guð vitjar sálnanna.
14 Sæll er geldingurinn sem eigi hefur framið lögmálsbrot
og eigi hefur hugsað illt gegn Drottni.
Því að trúfesti hans mun launuð með valinni gjöf
og æðra hlutskipti í musteri Drottins.
15 Ávöxtur heiðarlegrar iðju er lofsverður
og rótin, sem viskan sprettur af, er óhagganleg.
16 En hórbörn munu ekki ná þroska
og afsprengi legorðsbrota munu afmáð.
17 Þótt þau verði langlíf munu þau að vettugi virt
og elli þeirra að lyktum ærulaus.
18 Deyi þau fyrir aldur fram eiga þau enga von
og enga huggun á skapadægri.
19 Ill eru endalok rangláts kyns.