Börn ljóssins

1 Verðið því eftirbreytendur Guðs svo sem elskuð börn hans. 2 Lifið í kærleika eins og Kristur elskaði okkur og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir okkur svo sem fórnargjöf, Guði til þægilegs ilms.
3 En frillulífi og óhreinleiki yfirleitt eða ágirnd á ekki einu sinni að nefnast á nafn meðal ykkar. Slíkt hæfir ekki heilögum. 4 Ekki heldur svívirðilegt hjal eða ósæmandi spé. Þakkið miklu fremur Guði. 5 Því að það skuluð þið vita og festa ykkur í minni að enginn frillulífismaður eða saurugur eða ágjarn – sem er sama og að dýrka hjáguði – á sér arfsvon í ríki Krists og Guðs.
6 Látið engan tæla ykkur með marklausum orðum því að vegna þessa kemur reiði Guðs yfir þá sem hlýða honum ekki. 7 Verðið þess vegna ekki lagsmenn þeirra. 8 Eitt sinn voruð þið myrkur en nú eruð þið ljós í Drottni. Hegðið ykkur því eins og börn ljóssins. – 9 Því að ávöxtur ljóssins er einskær góðvild, réttlæti og sannleikur. – 10 Metið rétt hvað Drottni þóknast. 11 Eigið engan hlut í verkum myrkursins, sem ekkert gott hlýst af, heldur flettið miklu fremur ofan af þeim. 12 Því að það sem slíkir menn fremja í leyndum er jafnvel svívirðilegt um að tala. 13 En allt það sem ljósið afhjúpar verður augljóst. 14 Því að allt sem er augljóst er í ljósi.
Því segir svo:
Vakna þú sem sefur
og rís upp frá dauðum
og þá mun Kristur lýsa þér.

15 Hafið því nákvæma gát á hvernig þið breytið, ekki sem fávís heldur sem vís. 16 Notið hverja stund því að dagarnir eru vondir. 17 Verið því ekki óskynsöm heldur reynið að skilja hver sé vilji Drottins. 18 Drekkið ykkur ekki drukkin af víni, það leiðir aðeins til spillingar. Fyllist heldur andanum 19 og ávarpið hvert annað með sálmum, lofsöngvum og andlegum ljóðum. Syngið og lofið Drottin af öllu hjarta 20 og þakkið jafnan Guði, föðurnum, fyrir alla hluti í nafni Drottins vors Jesú Krists.

Skyldur hjóna

21 Sýnið Kristi lotningu og hvert öðru auðsveipni: 22 konurnar eiginmönnum sínum eins og Drottni. 23 Því að maðurinn er höfuð konunnar eins og Kristur er höfuð og frelsari kirkjunnar, líkama síns. 24 En eins og kirkjan lýtur Kristi, þannig lúti og konurnar eiginmönnum sínum í öllu.
25 Karlmenn, elskið konur ykkar eins og Kristur elskaði kirkjuna og lagði sjálfan sig í sölurnar fyrir hana 26 til þess að helga hana með orðinu og hreinsa hana í vatnslauginni. 27 Hann vildi leiða kirkjuna fram fyrir sig í dýrð án þess hún hefði blett eða hrukku né neitt slíkt. Heilög skyldi hún og lýtalaus. 28 Þannig skulu eiginmennirnir elska konur sínar eins og eigin líkami. Sá sem elskar konu sína elskar sjálfan sig. 29 Enginn hefur nokkru sinni hatað eigið hold heldur elur hann það og annast eins og Kristur kirkjuna 30 því við erum limir á líkama hans.
31 „Þess vegna skal maður yfirgefa föður og móður og búa við eiginkonu sína og munu þau tvö verða einn maður.“ 32 Þetta er mikill leyndardómur. Ég hef í huga Krist og kirkjuna. 33 En sem sagt, hver og einn skal elska eiginkonu sína eins og sjálfan sig en konan beri lotningu fyrir manni sínum.