1Þér sem eigið þræla, veitið þeim það sem rétt er og sanngjarnt og vitið, að einnig þér eigið Drottin á himni.2Verið staðfastir í bæninni. Vakið og biðjið með þakkargjörð.3Biðjið jafnframt fyrir oss, að Guð opni oss dyr fyrir orðið og vér getum boðað leyndardóm Krists. Hans vegna er ég nú bundinn.4Biðjið, að ég megi birta hann eins og mér ber að tala.5Umgangist viturlega þá, sem fyrir utan eru, og notið hverja stundina.6Mál yðar sé ætíð ljúflegt, en salti kryddað, til þess að þér vitið, hvernig þér eigið að svara hverjum manni.7Týkíkus, minn elskaði bróðir og trúi aðstoðarmaður og samverkamaður í þjónustu Drottins, mun láta yður vita allt um mína hagi.8Ég sendi hann til yðar gagngjört til þess að þér fáið að vita, hvernig oss líður, og til þess að hann uppörvi yður.9Með honum fer Onesímus, minn trúi og elskaði bróðir, sem er einn úr yðar hópi. Þeir munu láta yður vita allt, sem hér gjörist.10Aristarkus, sambandingi minn, biður að heilsa yður. Svo og Markús, frændi Barnabasar, sem þér hafið fengið orð um. Ef hann kemur til yðar, þá takið vel á móti honum.11Ennfremur biður Jesús, að viðurnefni Jústus, að heilsa yður. Þeir eru nú sem stendur einu umskornu samverkamenn mínir fyrir Guðs ríki, og hafa þeir verið mér til huggunar.12Einnig biður Epafras að heilsa yður, sem er einn úr yðar hópi. Hann er þjónn Krists Jesú og berst jafnan fyrir yður í bænum sínum, til þess að þér megið standa stöðugir, fullkomnir og fullvissir í öllu því, sem er vilji Guðs.13Þann vitnisburð gef ég honum, að hann leggur mikið á sig fyrir yður og þá sem eru í Laódíkeu og í Híerapólis.14Þá biður hann Lúkas að heilsa yður, læknirinn elskaði, og Demas.15Berið kveðju bræðrunum í Laódíkeu. Einnig Nýmfu og söfnuðinum sem kemur saman í húsi hennar.16Og þegar búið er að lesa þetta bréf upp hjá yður, þá látið líka lesa það í söfnuði Laódíkeumanna. Lesið þér og bréfið frá Laódíkeu.17Segið Arkippusi: Gættu embættisins, sem þú hefur tekið að þér í Drottni, og ræktu það vel.18Kveðjan er skrifuð með minni, Páls, eigin hendi. Minnist fjötra minna. Náð sé með yður!

4.2-4 Biðjið Ef 6.18-20
4.2 Stöðug í bæninni Róm 12.12; Fil 4.6; 1Þess 5.17-18 – vakið Matt 26.41; 1Þess 5.6
4.3 Biðjið fyrir mér Róm 15.30; Ef 6.19; 1Þess 5.25; 2Þess 3.1 – opni mér dyr 2Kor 2.12+
4.5 Þeir sem fyrir utan eru 1Kor 5.12; 1Þess 4.12; Róm 12.17; 1Pét 2.12 – notið hverja stund Ef 5.15-16
4.6 Mál ykkar Ef 4.29 – kunna að svara 1Pét 3.15
4.7 Týkíkus Post 20.4; Ef 6.21-22; 2Tím 4.12; Tít 3.12
4.9 Onesímus Fílm 10-12
4.10 Aristarkus Post 19.29+ – Markús Post 12.12+ ; 2Tím 4.11+ – Barnabas Post 4.36+
4.12 Epafras Kól 1.7+ – berst Kól 2.1 – í bænum sínum Róm 15.30; 1Mós 18.17-18; 32.28; 2Mós 32.11-14
4.13 Laódíkea Kól 2.1+
4.14 Lúkas Fílm 24; 2Tím 4.11 – Demas Fílm 24; 2Tím 4.10
4.15 Söfnuðurinn í húsi hennar Róm 16.5; Fílm 2
4.17 Arkippus Fílm 2
4.18 Kveðja skrifuð með eigin hendi Gal 6.11+ – fjötrar Ef 3.1; 4.1; 6.20; Fílm 1,9,10,13; Fil 1.7,13; 2Tím 1.8; 2.9