1Og það skal verða á hinum síðustu dögum, að fjall það, er hús Drottins stendur á, mun grundvallað verða á fjallatindi og gnæfa upp yfir hæðirnar, og þangað munu lýðirnir streyma.2Og margar þjóðir munu búast til ferðar og segja: Komið, förum upp á fjall Drottins og til húss Jakobs Guðs, svo að hann kenni oss sína vegu og vér megum ganga á hans stigum. Því að frá Síon mun kenning út ganga og orð Drottins frá Jerúsalem.3Og hann mun dæma meðal margra lýða og skera úr málum voldugra þjóða langt í burtu. Og þær munu smíða plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr spjótum sínum. Engin þjóð skal sverð reiða að annarri þjóð, og ekki skulu þær temja sér hernað framar.4Hver mun búa undir sínu víntré og undir sínu fíkjutré og enginn hræða þá. Því að munnur Drottins allsherjar hefir talað það.5Því að allar þjóðirnar ganga hver í nafni síns guðs, en vér göngum í nafni Drottins, Guðs vors, æ og ævinlega.6Á þeim degi segir Drottinn vil ég saman safna því halta og smala saman því tvístraða og þeim er ég hefi tjón unnið,7og ég vil gjöra hið halta að nýjum kynstofni og hið burtflæmda að voldugri þjóð. Og Drottinn sjálfur mun verða konungur yfir þeim á Síonfjalli héðan í frá og að eilífu.8En þú, varðturn hjarðmannsins, hæð dótturinnar Síon, til þín mun koma og aftur til þín hverfa hið forna veldi, konungdómur dótturinnar Jerúsalem.9Nú, hví hljóðar þú svo hástöfum? Hefir þú engan konung, eða er ráðgjafi þinn horfinn, úr því að kvalir grípa þig eins og jóðsjúka konu?10Fá þú hríðir og hljóða þú, dóttirin Síon, eins og jóðsjúk kona. Því að nú verður þú að fara út úr borginni og búa á víðavangi og fara alla leið til Babýlon. Þar munt þú frelsuð verða, þar mun Drottinn leysa þig undan valdi óvina þinna.11En nú hafa margar þjóðir safnast í móti þér, þær er segja: Verði hún vanhelguð, svo að vér megum horfa hlakkandi á Síon!12En þær þekkja ekki hugsanir Drottins og skilja ekki ráðsályktun hans, að hann hefir safnað þeim saman eins og kerfum á kornláfa.13Rís upp og þresk, dóttirin Síon, því að ég gjöri þér horn af járni og klaufir af eiri, svo að þú skalt sundur merja margar þjóðir. Og þú munt helga Drottni ránsfeng þeirra og fjárafla þeirra honum, sem er Drottinn allrar jarðarinnar.

4.1-3 Sbr Jes 2.2-4
4.1 Þjóðirnar streyma til Jerúsalem Jes 56.6-8; 60; 66.18-20; Jer 3.17; Sak 8.20-23; 14.16; sbr Hag 2.7
4.2 Orð Drottins Jóh 4.22
4.3 Smíða plógjárn úr sverðum sbr Hós 2.20+ ; Jl 4.10
4.4 Víntré, fíkjutré 1Kon 5.5; Sak 3.10
4.5 Í nafni Guðs vor sbr Jes 2.5
4.6-7 Ég safna saman Mík 2.12-13+
4.9-10 Kvalir jóðsjúkrar konu Jes 66.7-9; Jer 4.31; 6.24; 22.23; 30.6; sbr Matt 24.8+
4.11 Safnist gegn Esk 38-39; Opb 19.11-21; 20.7-10
4.12 Hugur Drottins Jes 5.12; 55.8-9; Slm 28.5
4.13 Horn af járni 1Kon 22.11- helga Drottni herfang Jes 60.3-5; Slm 72.10-11; Opb 21.24