1Að endingu, bræður mínir, verið glaðir í Drottni. Ég tel ekki eftir mér að endurtaka það, sem ég hef skrifað, en yður er það til öryggis.2Gefið gætur að hundunum, gefið gætur að hinum vondu verkamönnum, gefið gætur að hinum sundurskornu.3Vér erum hinir umskornu, vér sem dýrkum Guð í anda hans og miklumst af Kristi Jesú og treystum ekki ytri yfirburðum,4jafnvel þótt ég hafi einnig þá ytri yfirburði, sem ég gæti treyst. Ef einhver annar þykist geta treyst ytri yfirburðum, þá get ég það fremur.5Ég var umskorinn á áttunda degi, af kyni Ísraels, ættkvísl Benjamíns, Hebrei af Hebreum, farísei í afstöðunni til lögmálsins,6svo ákafur, að ég ofsótti kirkjuna. Ef litið er á réttlætið, sem fæst með lögmálinu, var ég vammlaus.7En það, sem var mér ávinningur, met ég nú vera tjón sakir Krists.8Já, meira að segja met ég allt vera tjón hjá þeim yfirburðum að þekkja Krist Jesú, Drottin minn. Sakir hans hef ég misst allt og met það sem sorp, til þess að ég geti áunnið Krist9og reynst vera í honum. Nú á ég ekki eigið réttlæti, það er fæst af lögmáli, heldur það er fæst fyrir trú á Krist, réttlætið frá Guði með trúnni. _10Ég vil þekkja Krist og kraft upprisu hans og samfélag písla hans með því að mótast eftir honum í dauða hans.11Mætti mér auðnast að ná til upprisunnar frá dauðum.12Ekki er svo, að ég hafi þegar náð því eða sé þegar fullkominn. En ég keppi eftir því, ef ég skyldi geta höndlað það, með því að ég er höndlaður af Kristi Jesú.13Bræður, ekki tel ég sjálfan mig enn hafa höndlað það.14En eitt gjöri ég. Ég gleymi því, sem að baki er, en seilist eftir því, sem framundan er, og keppi þannig að markinu, til verðlaunanna á himnum, sem Guð hefur kallað oss til fyrir Krist Jesú.15Þetta hugarfar skulum vér því allir hafa, sem fullkomnir erum. Og ef þér hugsið í nokkru öðruvísi, þá mun Guð einnig opinbera yður þetta.16Fyrir alla muni skulum vér ganga þá götu, sem vér höfum komist á.17Bræður, breytið allir eftir mér og festið sjónir yðar á þeim, sem breyta eftir þeirri fyrirmynd, er vér höfum yður gefið.18Margir breyta, _ ég hef oft sagt yður það og nú segi ég það jafnvel grátandi _, eins og óvinir kross Krists.19Afdrif þeirra eru glötun. Guð þeirra er maginn, þeim þykir sómi að skömminni og þeir hafa hugann á jarðneskum munum.20En föðurland vort er á himni og frá himni væntum vér frelsarans, Drottins Jesú Krists.21Hann mun breyta veikum og forgengilegum líkama vorum og gjöra hann líkan dýrðarlíkama sínum. Því hann hefur kraftinn til að leggja allt undir sig.

3.1 Verið glöð Fil 1.4+ ; 2Kor 13.11; 1Þess 5.16
3.2 Vondir verkamenn 2Kor 11.13 – hinir sundurskornu Gal 5.12
3.3 Hinir umskornu 5Mós 10.16; Róm 2.29; Kól 2.11 – dýrkun í anda Róm 1.9; 12.1; sbr Fil 2.17
3.4 Páll Gyðingur Post 22.3-5; 23.6; 26.4-7; Róm 11.1; 2Kor 11.22; Gal 1.13-14
3.5 Umskurn á áttunda degi 1Mós 17.12; 3Mós 12.3; Lúk 1.59; 2.21
3.6 Ég ofsótti kirkjuna Post 8.3; 9.1-2,13-14; 22.4; 26.9-11; 1Kor 15.9; Gal 1.13,23; 1Tím 1.13-14
3.8 Þekkja Hós 2.22; Jóh 10.14; 17.3; 1Kor 13.12 – Krist Jesú Ef 3.19; 4.13
3.9 Tvenns konar réttlæti Matt 5.20; Róm 3.21-22; 10.3; Gal 2.16; 3.21-22
3.10 Eins og Kristur Róm 6.4-9; 8.17; 1Kor 6.14; 2Kor 4.10-14; Gal 6.17 – þekkja kraft upprisu hans Jóh 11.24-26
3.12 Fullkominn 1Kor 14.20; Kól 1.28; sbr Matt 5.48; 1Kor 2.6 – höndlaður af Kristi Post 9.5-6; Gal 1.15-16 – höndla 1Kor 8.3; Gal 4.9; 1Tím 6.12; 1Jóh 4.10-19 – keppni postulans Fil 2.16+
3.17 Breytið eftir mér 1Kor 4.16; 11.1; 1Þess 1.6; sbr Ef 5.1+ ; 1Þess 1.7; 2.14; 1Pét 5.3
3.18 Óvinir krossins 1Kor 1.17-18,23; Gal 5.11; 6.12
3.19 Hafa hugann á jarðneskum munum Matt 6.19; Jóh 3.12; Róm 8.5-6; Kól 3.2
3.20 Föðurland á himni Ef 2.6,19; Heb 11.10; 12.22; 13.14 – væntum Róm 8.19-23; 1Kor 1.7; Tít 2.13
3.21 Fái sömu mynd Róm 8.29; 1Kor 15.42-49,53 – kraftur Krists Ef 1.19; 3.7; sbr 1Kor 1.25 – leggja allt undir Jesú Krist 1Kor 15.27-28; Heb 2.8