Hinn III. S. Johannis pistill
I.
Sá eldri Gajo hinum elskulega hvern eg elska í sannleika. Minn elskulegi, eg æski í öllum greinum það að þér vel vegni og heilbrigður sért so sem það nær þinni sálu vel vegnar. Eg gladdist nærsta þá bræðurnir komu og gáfu vitnisburð af þínum sannleika hvernin þú gengur í sannleiknum. Eg hefi eigi nokkurn fögnuð meiri en þann það eg heyri það mín börn ganga í sannleikanum.
Minn ástsamlegi, þú gjörir trúlega hvað þú gjörir við bræðurna og gestina, hverjir af þínum kærleika hafa vitnisburð gefið fyrir söfnuðinum. Og það hefur þú velgjört að þú hefur þá fyrir Guði verðulega á veg leitt. Því fyrir hans nafns sakir eru þeir útfarnir og hafa af heiðingjum ekkert tekið. Því skulu vér þess háttar meðtaka upp á það vér séum samverkendur sannleiksins.
Eg skrifaði safnaðinum en Díótrefes sá meðal þeirra vill mikils metinn vera meðtekur oss eigi. Fyrir því nær eg kem vil eg áminna hann sinna verka er hann gjörir og þvættir með vondum orðum í gegn oss og lætur sér ekki nægja það hann meðtekur eigi sjálfur bræðurna og fyrirbýður þeim sem það vilja gjöra og útrekur þá af söfnuðinum.
Minn kærasti, eftirfylg ei hinu vonda heldur því hinu góða. Hver gott gjörir hann er af Guði. Hver illa gjörir sá sér eigi Guð. Demetríus hann hefur vitnisburð af hverjum manni og af sannleiknum sjálfum og vér berum einnin vitni og þér vitið það vor vitnisburður er sannur. Eg hefða vel margt að skrifa en eg vilda eigi með bleki og penna til þín skrifa. En eg vænti það eg muni snarlega sjá þig og mun þá munnur við munn mæla. Friður sé með þér. Þér heilsa vinirnir. Heilsa þú vinunum með nafni.