Sancti Pauli

pistill til Philemonem

I.

Páll, bandingi Jesú Christi, og Tímóteus bróðir [

Philemoni ástsamlegum og vorum meðhjálpara, og ástúðlegri Appea og Archippo, vorum samherjara, og söfnuðinum í þínu húsi: [

Náð sé með yður og friður af Guði vorum föður og Drottni Jesú Christo.

Eg þakka mínum Guði og hugleiði þig jafnlega í mínum bænum af því eg heyri út af þeim kærleika og trú sem þú hefur við Drottin Jesúm og við alla heilaga það að þín trúa, hverja vér sameiginlega höfum, verði kröftug í þér fyrir viðurkenning alls hins góða sem þér hafið í Christo Jesú. [ En eg hefi fögnuð mikinn og huggun í þínum kærleika. Því að hjörtu þeirra heilögu eru nærsta endurnærð fyrir þig, kæri bróðir.

Fyrir því, þótt eg hafi stórt vald til þér að bjóða í Christo hvað þér sómir, þá vil eg þó fyrir kærleiksins sakir einasta áminna þig, eg sem þesslegur er, einkanlega hinn gamli Páll, en nú einnin bandingi Jesú Christi. Þá beiði eg fyrir son minn, Onesimum, þann eg alið hefi í mínum böndum, hver þér var forðum óþarfur en nú þér og mér nærsta þarfanlegur. Hvern eg sendi þér nú aftur en þú vildir hann meðtaka sem mitt hjarta. Því að eg vildi hafa haldið honum hjá mér að hann þjónaði mér í staðinn þín í böndum guðsspjallsins. En utan þinn vilja vilda eg ekkert gjöra so að þinn góði væri ekki neyddur heldur sjálfráður.

Því vera má það hann sé þar fyrir um stundarsakir frá þér farinn það þú hann aftur fengir eilíflega, nú eigi lengur sem þjón heldur framar en þjón, einn kæran bróður, einkanlega minn, en hversu miklu meir þá þinn, bæði eftir holdinu og eftir Drottni? Ef þú heldur mig nú fyrir þinn lagsmann þá muntu vilja meðtaka hann sem sjálfan mig. En hafi hann gjört þér nokkurt tjón eða sé þér nokkuð skyldugur, það reikna mér til. Eg, Páll, skrifaði þetta með minni hendi: Eg vil bitala. Eg segi ekki það þú sért mér sjálfan þig skyldugur. Minn kæri bróðir, unn mér þess það eg endurnæri mig á þér í Drottni. Endurnær þú mitt hjarta í Drottni.

Eg hefi þér út af trausti þinnar hlýðni til skrifað því að eg veit það þú munir framar gjöra en eg segi. En jafnframt þessu reiðubú þú mér herbergi. Því að eg vona það eg verði yður fyrir yðra bón veittur. Þér heilsar Epafras, minn sambandingi í Christo Jesú, Markús, Aristarkus, Demas, Lúkas, mínir hjálpendur. [ Náð vors Drottins Jesú Christi sé með yðrum anda. A M E N.

Skrifaður frá Róm

með Onesimo