3.1 hann: Trúlega átt við Guð.
3.2 þegar hann birtist, þá verðum við honum lík: Sjá athugagrein við 2.28. Sjá og Róm 8.28-30; 1Kor 15.12-55.
3.3 hreinn: Sjá athugagrein við 2.20 (Hinn heilagi).
3.3: Kristur: Á grískunni „þessi“ og kann að eiga við Guð.
3.4 fremur lögmálsbrot: Sjá athugagrein við 1.7. Átt er við brot gegn lögmáli Móse eða guðleysið og illskuna, sem Páll postuli ritar um í Róm 1.18-32.
3.8 djöflinum: Djöfullinn, stundum nefndur Satan, er höfðingi þeirra annarlegu afla sem standa í gegn Guði og lýð hans.
3.9 það sem Guð hefur í hann sáð: Á grískunni: „því að sáð hans varir í honum“; Hér kann að vera átt við heilagan anda, er þeir öðlast, sem eru Guðs börn (2.27-29).
3.12 Kain…myrti bróður sinn: Sjá 1Mós 4.1-16.
3.15 eilíft líf: Sjá athugagrein við 1.2.
3.19 sannleikans megin: Sjá athugagreinar við 1.6 og 1.7.
3.23 trúa…elska: Trú er traust á Jesús Kristi, Guðs syni og frelsara heimsins. Sjá „Trú„. Um gildi kærleikans má lesa í Jóhannesarguðspjalli (Jóh 13.34,35; 15.12-17). Þar segir Jesús við lærisveina sína: „Eins og ég hef elskað yður skuluð þér einnig elska hvert annað“ (Jóh 13.34).
3.24 er stöðugur í Guði: Sjá athugagrein við 2.24.
3.24 andanum: Sjá athugagrein við 2.27.