7.12lögmálið og spámennirnir:  Sjá athugagrein við 5.17.

7.15falsspámenn:  Þeir sem látast flytja Guðs orð en leiða í raun lýðinn í burt frá sannleikanum og kalla yfir hann vandræði.

7.16fíkjur: Fíkjur eru ávöxtur trés með greinar og lauf, sem ná allt niður á jörðu, sætar á bragðið.  Fíkjutré getur orðið allt að 9 metrar á hæð og ber ávexti tvisvar á ári.  Vorfíkjur þroskast í júní og eru etnar nýjar.  Hinar síðvöxnu eru tíndar í ágúst og september.  Þær voru þurrkaðar á flötum húsþökunum og geymdar til vetrarins.

7.22á þeim degi:  Á dómsdegi. Hér er átt við þá tíð, þegar Guð mun rannsaka hvernig menn hafa lifað og dæma um það hvort þeir hafi verið trúir og sér hlýðnir.  Þetta er fyrirferðarmikið umræðuefni í Matteusarguðspjalli.

7.28Þegar Jesús hafði lokið þessari ræðu:  Þessi orð, eða önnur álíka, koma fyrir fimm sinnum í Matteusarguðspjalli.  Þau marka þáttaskil í ritinu.  4. til 25. kapítula má skipta í fimm hluta og lýkur hverjum þeirra með þessum eða svipuðum hætti.  Hvern þessara hluta má svo greina sundur í tvennt og hermir hinn fyrri þeirra frá athöfnum Jesú en hinn síðari frá kenningu hans.