Tölustafir höfðu ákveðna merkingu að fornu og voru höfundar Biblíunnar einnig sannfærðir um það. Á töflunni sem hér fer á eftir má sjá nokkur dæmi um þetta.   Hafa ber í huga, að stundum merkja tölurnar magn og fjölda, og eru þá ekki táknrænar.

EINN

Eingyðistrú, hinn eini, eining.

  • “Heyr Ísrael.  Drottinn, Guð vor, Drottinn er einn.”  5Mós 6.4
  • “Einn er Drottinn, ein trú, ein skírn.”  Ef 4.5

ÞRÍR

Fullkomleiki eða  heild.  Í mörgum trúarbrögðum var þrír álitin heilög tala.

  • Þrír voru gestir Abrahams í Mamrelundi.  1Mós 18.1-15
  • Þrjár eru hátíðar Gyðinga (hátíð hinna ósýrðu brauða, uppskeruhátíðin og laufskálahátíðin).  2Mós 23.14-19; 3Mós 23.34.
  • Þrjá daga og þrjár nætur var Jónas í kviði fisksins.  Jónas 2.1.
  • Á þriðja degi reis Jesús upp frá dauðum.  Mrk 8.31;  1Kor 15.4.

FJÓRIR

Skipan sköpunarverksins.  Fjórar eru höfuðáttir og fjórar árstíðir.

  • Fjögur er stórfljótin, sem renna út úr aldingarðinum Eden.  1Mós 2.10.
  • Fjórar voru verurnar, sem Esekíel spámaður sá í sýn.  Esk 1.4-28 (sjá og Opb 4.1-8)
  • Fjórir voru hestarnir og reiðmennirnir í sýn Jóhannesar.  Opb 6.1-8.

SJÖ

Algjörleiki og fullkomnun.  Eins og þrír er og sjö heilög tala.

  • Sjö daga var Guð að skapa heiminn, að hvíldardeginum meðtöldum. 1Mós 1.1-2.3. Sjöunda daginn hvíldist Guð og helgaði þann dag (sabbatinn). 2Mós 20.8-11.
  • Sjöunda hvert ár skyldu Ísraelsmenn láta landið hvílast (sabbatsár).  2Mós 23.10,11.
  • Fimmtugasta hvert ár (7 x 7 + 1) skyldi vera fagnaðarár í Ísrael, helgað frelsi og fyrirgefningu.  3Mós 25.8-55.
  • Fyrirkomulag innan dyra í musterinu og hönnun skrautmuna þar byggði oft á tölunni sjö. 1Kon 7.17; Esk 40.22,26.
  • Sjö sinnum skyldi blóðinu stökkt við fórnarathafnir.  3Mós 4.6,17; 14.7; 4Mós 19.4.
  • Sjö talsins er ýmislegt, sem nefnt er í Opinberunarbók Jóhannesar (ljósastikur, stjörnur, söfnuðir, innsigli, básúnur, skálar).  Opb 6.11; 15; 16.
  • Sjötíu sinnum sjö sinnum sagði Jesú að bæri að fyrirgefa.  Matt 18.21,22.

TÍU

Þar eð tíu er þversumman af þremur og sjö, táknar sú tala stundum algera fullkomnun.

  • Tíu sinnum stendur “þá sagði Guð” í hinum hebreska texta sköpunarfrásögunnar. 1Mós 1.1-31.
  • Tíu eru boðorðin. 2Mós 20.1-17;  5Mós 5.1-22.

TÓLF

Einnig tala algjörleika og fullkomnunar.

  • Tólf voru synir ættföðurins Jakobs, og tólf ættkvíslir Ísraels.  1Mós 35.23-26;  49.1-28.
  • Tólf voru hlið hinnar helgu borgar Jerúasalemí vitrun Esekíels spámanns.  Esk 48.30 (sjá og Opb 21.11-21).
  • Tólf voru postular Jesú.  Matt 19.1-14; Mrk 3.13-19;  Lúk 6.12-16;  sjá og Post 1.12-26.

FJÖRUTÍU

Langt og þó takmarkað tímabil.

  • Fjörutíu daga og fjörutíu nætur rigndi í vatnsflóðinu mikla.  1Mós 7.4,17,18.
  • Fjörutíu daga og fjörutíu nætur dvaldist Móse á Sínaífjalli.  2Mós 24.17,18.
  • Fjörutíu ár stóð yfir eyðimerkurganga  Ísraelsmanna. 4Mós 14.33,34; 5Mós 2.7; 29.4-6.
  • Fjörutíu daga og fjörutíu nætur fastaði Jesús í óbyggðinni.  Matt 4.2;  Mrk 1.12,13; Lúk 4.2.
  • Fjörutíu ár sátu Davíð og fleiri góðir konungar að ríki.  2Sam 5.4;  1Kon 11.41,42; 2Kro 24.1.