Hinir tólf lærisveinar Jesú eru taldir upp í þremur af guðspjöllunum fjórum. Hér sést að nöfn þeirra sem Markús og Lúkas nefna koma heim og saman við nafnalistann í Matteusarguðspjalli.
Matteus 10.2-4 | Markús 3.14-19 | Lúkas 6.13,16 |
Símon (Pétur) | Símon (Pétur) | Símon (Pétur) |
Andrés, bróðir Péturs | Andrés | Andrés, bróðir Péturs |
Jakob Sebedeusson | Jakob Sebedeusson | Jakob (þrumusonur) |
Jóhannes Sebedeusson | Jóhannes Sebedeusson | Jóhannes (þrumusonur) |
Filippus | Filippus | Filippus |
Bartólómeus | Bartólómeus | Bartólómeus |
Tómas | Tómas | Tómas |
Matteus tollheimtumaður | Matteus | Matteus |
Jakob Alfeusson | Jakob Alfeusson | Jakob Alfeusson |
Taddeus | Taddeus | Júdas Jakobsson |
Símon vandlætari | Símon vandlætari | Símon vandlætari |
Júdas Ískaríot | Júdas Ískaríot | Júdas Ískaríot |
Lærisveinarnir tólf voru seinna nefndir postular, sem og fáeinir aðrir eins og t.d. Páll postuli. Jesús gaf lærisveinum sínum vald til þess að lækna sjúka og reka út illa anda. Lærisveinarnir eru líka taldir upp í Mrk 3.16-19 og Lúk 6.13-16 og ber guðspjöllunum þremur nær alveg saman. Sjá töfluna hér að ofan.