Barnabiblíuappið
Nú geta börn notað Biblíuapp fyrir börn á íslensku. Biblíufélagið í samstarfi við OneHope, með góðri hjálp sjálfboðaliða, með frábærum stuðningi Bakhjarla Biblíunnar og annarra styrktaraðila Biblíufélagsins hefur látið útbúa íslenska útgáfu af Biblíuappi fyrir börn. Það er von okkar að [...]
Jólasöfnun Biblíufélagsins
Í dag, 10. janúar hafa alls 742.300 krónur safnast í jólasöfnun Biblíufélagsins. Söfnunarféð verður nýtt til útgáfu á Biblíuappi fyrir börn, auk þess sem stutt verður við uppbyggingu nýlegs Biblíufélags í mið-Asíu. Biblíufélagið er þakklát fyrir þann stuðning sem velunnarar sýna félaginu.
Hver er besta leiðin til að lesa Biblíuna?
Eftir Mark Thorntveit, prófessor í Gamlatestamentisfræðum við Luther Seminary, MN. Þorgils Hlynur Þorbergsson þýddi úr ensku. Við skulum byrja á byrjuninni. Það er engin ein leið best til þess að lesa Biblíuna. Biblíulestur er góður og gagnlegur, hvernig svo sem þú lest [...]
Jólasöfnun Biblíufélagsins er enn í fullum gangi
Jólasöfnun Biblíufélagsins gengur vel, en í lok dags 20. desember, höfðu safnast 507.400 krónur til að ljúka fjármögnun fyrir Barnabiblíuapp og til að styðja við uppbyggingu nýlegs Biblíufélags í mið-Asíu. Biblíufélagið er gífurlega þakklátt fyrir stuðninginn fram til þessa. Enn er [...]
B+ fréttabréf Biblíufélagsins er komið
Blað Biblíufélagsins, B+ er komið út og verður dreift í kirkjur og sent til félagsfólks. Hægt er að lesa blaðið með því að smella á slóðina hér fyrir neðan. B+ 2021 by Hið íslenska biblíufélag - Issuu
Jólasöfnun Biblíufélagsins fer vel af stað
Jólasöfnun Biblíufélagsins fer vel af stað nú í ár, en um miðjan dag í dag, föstudaginn 10. desember, höfðu safnast 245.400 krónur til að ljúka fjármögnun fyrir Barnabiblíuapp og til að styðja við uppbyggingu nýlegs Biblíufélags í mið-Asíu. Biblíuappið verður gagnvirkt [...]
Jólasöfnun Biblíufélagsins
Í byrjun næsta árs mun Hið íslenska biblíufélag stíga nýtt og mikilvægt skref með því að gefa út íslenskt barnabiblíuapp fyrir snjalltæki í samvinnu við YouVersion í Bandaríkjunum. Biblíuappið er gagnvirkt þar sem börn heyra Guðjón Davíð Karlsson (Góa) lesa biblíusögurnar [...]
Fyrsta Mósebók komin út á hljóðbók
Biblíufélagið með stuðningi Bakhjarla Biblíunnar hefur gefið út Fyrstu Mósebók sem hljóðbók í lestri Arnars Jónssonar leikara. Hægt er að nálgast hljóðbókina á vef Biblíufélagsins með því að smella á hljóðbók efst á síðunni.
Að gefnu tilefni: Tekjublað Frjálsrar verslunar
Í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út nú um miðjan ágúst er talað um laun framkvæmdastjóra Hins íslenska biblíufélags, Ragnhildar Ásgeirsdóttur. Ragnhildur var farsæll framkvæmdastjóri í eina tíð en hefur ekki starfað fyrir Bibliufélagið síðan 2017. Hið rétta er að Biblíufélagið hefur [...]
Kristniboðssambandið styður við Biblíuþýðingu í SV- Eþíópíu
Kristniboðssambandið á Íslandi styður fjárhagslega við þýðingu Biblíunnar yfir á tsemakko sem er tungumál Tsemaimanna en flestir þeirra búa í Voítódalnum í SV- Eþíópíu þar sem íslenskir kristniboðar hafa búið og starfað. Hægt er að lesa um verkefnið á heimasíðu Sambands íslenska [...]
Félagar í Biblíufélaginu
Hið íslenska biblíufélag er að mestu leyti rekið af styrktarfé og félagsgjöldum, auk þess sem félagið fær hóflegar höfundarréttargreiðslur vegna seldra Biblía. Félagar í Biblíufélaginu er í dag 1190 talsins. Af þeim eru 383 jafnframt Bakhjarlar sem styðja félagið með mánaðarlegu [...]