Jólasöfnun Biblíufélagsins gengur vel, en í lok dags 20. desember, höfðu safnast 507.400 krónur til að ljúka fjármögnun fyrir Barnabiblíuapp og til að styðja við uppbyggingu nýlegs Biblíufélags í mið-Asíu. Biblíufélagið er gífurlega þakklátt fyrir stuðninginn fram til þessa. Enn er rúmur hálfur mánuður til stefnu en söfnuninni lýkur formlega á Þrettándanum, 6. janúar 2022.
Biblíuappið verður gagnvirkt þar sem börn heyra Guðjón Davíð Karlsson (Góa) lesa biblíusögurnar á íslensku. Söguslóðirnar lifna við í litríkum mynd- og hljóðheimi beint í símanum þínum eða spjaldtölvu. Spennandi leikir og þrautir fylgja jafnframt sögunum.
Það er því enn tími til að leggja okkur lið við í jólasöfnuninni og styðja við annað eða bæði af þessum tveimur mikilvægu verkefnum, hérlendis og erlendis.