Biblíulestur 13. október – Jer 30.1–11
Orðið sem kom frá Drottni til Jeremía:
Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Skráðu í bók öll þau orð sem ég hef flutt þér. Því að þeir dagar koma, segir Drottinn, að ég sný við hag þjóðar minnar, Ísraels og Júda, segir Drottinn. Ég mun leiða þá aftur til landsins sem ég fékk feðrum þeirra og þeir tóku til eignar.
Þetta eru orðin sem Drottinn flutti Ísrael og Júda.
Svo segir Drottinn:
Vér heyrum angistaróp
til marks um ótta en ekki frið.
Spyrjið og gætið að:
Getur karl alið barn?
Hví eru allir karlmenn, sem ég sé,
með hendur á lendum eins og kona með jóðsótt?
Hví er hvert andlit nábleikt?
Já, mikill er þessi dagur,
engum öðrum líkur.
Þetta er þrengingatíð fyrir Jakob
en honum verður bjargað.
Þann dag, segir Drottinn hersveitanna, mun ég brjóta okið af hálsi hans og slíta hlekki hans. Þeir munu ekki lengur þræla fyrir framandi menn heldur þjóna Drottni, Guði sínum, og Davíð, konungi sínum, sem ég mun hefja upp þeirra vegna.
Óttast ekki, þjónn minn, Jakob,
segir Drottinn,
og lát ekki hugfallast, Ísrael.
Ég mun sjálfur bjarga þér úr fjarlægu landi,
niðjum þínum úr landinu þar sem þeir eru útlagar.
Jakob mun snúa heim og næðis njóta.
Hann mun búa þar óhultur
og enginn ógna honum.
Já, ég er með þér, segir Drottinn,
til að bjarga þér.
Ég mun eyða öllum þeim þjóðum
sem ég dreifði þér á meðal.
Þér einum mun ég aldrei eyða
en ég mun refsa þér við hæfi
og ekki láta þér með öllu óhegnt.
Biblíulestur 12. október – Jer 29.16–32
Svo segir Drottinn um konunginn sem situr í hásæti Davíðs og allt fólkið sem býr í þessari borg, bræður yðar sem ekki þurftu að fara í útlegð með yður: Svo [...]
Biblíulestur 11. október – Jóh 9.1–11
Á leið sinni sá Jesús mann sem var blindur frá fæðingu. Lærisveinar hans spurðu hann: „Rabbí, hvort hefur þessi maður syndgað eða foreldrar hans fyrst hann fæddist blindur?“ Jesús svaraði: [...]
Biblíulestur 10. október – Slm 130 og 131
Sálmur 130 Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn, Drottinn, heyr þú raust mína, lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína. Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum, Drottinn, hver fengi [...]
Biblíulestur 9. október – Jer 29.1–15
Þannig hljóðar bréfið sem Jeremía spámaður sendi frá Jerúsalem til þeirra sem eftir voru af öldungum útlaganna, til prestanna, spámannanna og alls fólksins sem Nebúkadnesar hafði flutt í útlegð frá [...]
Biblíulestur 8. október – Jer 28.1–17
Þetta sama ár ávarpaði Hananja spámaður Assúrsson frá Gíbeon mig í húsi Drottins. Það var við upphaf stjórnar Sedekía Júdakonungs, á fjórða árinu, í fimmta mánuðinum, að hann talaði við [...]
Biblíulestur 7. október – Jer 27.9–22
En hlustið ekki á spámenn yðar, spásagnamenn, þá sem drauma dreymir, þá sem skýra fyrirboða eða galdramenn þegar þeir segja við yður: „Þér verðið ekki þjónar konungsins í Babýlon.“ Því [...]