Biblíulestur 1. nóvember – Matt 18.15–20
Ef bróðir þinn syndgar [gegn þér] skaltu fara og tala um fyrir honum og sé það ykkar einna í milli. Láti hann sér segjast hefur þú endurheimt bróður þinn. En láti hann sér ekki segjast skaltu taka með þér einn eða tvo að „hvert orð sé staðfest með framburði tveggja eða þriggja vitna“. Ef hann skeytir þeim ekki þá seg það söfnuðinum. Skeyti hann ekki söfnuðinum heldur, sé hann þér sem heiðingi eða tollheimtumaður.
Sannlega segi ég yður: Hvað sem þér bindið á jörðu mun bundið á himni og hvað sem þér leysið á jörðu mun leyst á himni.
Enn segi ég yður: Ef tveir yðar verða einhuga hér á jörð í bæn sinni mun faðir minn á himnum veita þeim allt sem þeir biðja um. Því að hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir í mínu nafni þar er ég mitt á meðal þeirra.“
Biblíulestur 26. október – Jer 33.14–34.7
Þeir dagar koma, segir Drottinn, þegar ég læt hið góða fyrirheit rætast sem ég gaf Ísraelsmönnum og Júdamönnum. Á þeim dögum og þeim tíma mun ég láta réttlátan kvist vaxa [...]
Biblíulestur 25. október – Jóh 4.34–38
Jesús sagði við þá: „Minn matur er að gera vilja þess sem sendi mig og fullna verk hans. Segið þið ekki: Enn eru fjórir mánuðir, þá kemur uppskeran? En ég [...]
Biblíulestur 24. október – Slm 133 og 134
Sálmur 133 Sjá, hversu fagurt og yndislegt það er þegar bræður búa saman. Það líkist ágætri olíu á höfði sem drýpur niður í skeggið, skegg Arons, og fellur niður á [...]
Biblíulestur 23. október – Jer 33.1–13
Orð Drottins kom öðru sinni til Jeremía á meðan hann var enn í haldi í garði varðliðsins: Svo segir Drottinn sem skapaði jörðina, mótaði hana og grundvallaði. Nafn hans er [...]
Biblíulestur 22. október – Jer 32.26–44
Þá kom orð Drottins til Jeremía: Ég er Drottinn, Guð alls dauðlegs. Er mér nokkuð um megn? Þess vegna segir Drottinn: Ég sel þessa borg í hendur Kaldeum og Nebúkadresari [...]
Biblíulestur 21. október – Jer 32.9–25
Þá skildi ég að þetta voru boð frá Drottni og keypti akurinn í Anatót af Hanameel, syni föðurbróður míns. Ég greiddi honum verðið, sautján sikla silfurs. Síðan skrifaði ég kaupsamninginn [...]