Biblíulestur 31. október – Jóh 8.31–36
Þá sagði Jesús við Gyðingana, sem tekið höfðu trú á hann: „Ef þér farið eftir því sem ég segi eruð þér sannir lærisveinar mínir og munuð þekkja sannleikann, og sannleikurinn mun gera yður frjálsa.“
Fólkið svaraði honum: „Við erum niðjar Abrahams og höfum aldrei verið nokkurs manns þrælar. Hvernig getur þú þá sagt: Þið munuð verða frjálsir?“
Jesús svaraði þeim: „Sannlega, sannlega segi ég yður: Hver sem drýgir synd er þræll syndarinnar. En þrællinn dvelst ekki um aldur á heimilinu, sonurinn dvelst þar um aldur og ævi. Ef sonurinn frelsar yður munuð þér sannarlega verða frjálsir.
Biblíulestur 20. október – Jer 31.38–32.8
Þeir dagar koma, segir Drottinn, að borg Drottins verður endurreist frá turni Hananels að Hornhliðinu. Mælisnúran mun liggja beint að Garebhæð og sveigja síðan til Góa. Allur dalurinn með líkunum [...]
Biblíulestur 19. október – Jer 31.27–37
Þeir dagar koma, segir Drottinn, að ég mun fjölga bæði mönnum og dýrum í Ísrael og Júda. Ég vakti yfir þeim til að uppræta, rífa, brjóta, eyða og valda skaða; [...]
Biblíulestur 18. október – Matt 21.28–32
Jesús sagði: „Hvað virðist ykkur? Maður nokkur átti tvo syni. Hann gekk til hins fyrra og sagði: Sonur minn, far þú og vinn í dag í víngarði mínum. Hann svaraði: [...]
Biblíulestur 17. október – Slm 132
Minnstu Davíðs, Drottinn, og allra þrauta hans, hans sem sór Drottni eið, hét Hinum volduga Jakobs: „Ég vil eigi ganga inn í tjaldhús mitt, ekki stíga upp í hvílu mína, [...]
Biblíulestur 16. október – Jer 31.15–26
Svo segir Drottinn: Rödd heyrist í Rama, harmakvein, beiskur grátur. Rakel grætur börn sín, hún vill ekki huggast láta vegna barna sinna því að þau eru ekki framar lífs. Svo [...]
Biblíulestur 15. október – Jer 31.1–14
Á þeim tíma, segir Drottinn, verð ég Guð allra ættbálka Ísraels og þeir verða lýður minn. Svo segir Drottinn: Sú þjóð sem komst undan sverðinu hlaut náð eins og í [...]