Biblíulestur 30. október – Jer 36.20–32
Því næst gengu þeir fyrir konung í hallargarðinum eftir að hafa komið bókinni fyrir í herbergi Elísama ríkisritara. Síðan sögðu þeir konungi allt af létta.
Þá sendi konungur Jahúdí til þess að sækja bókina og hann tók hana með sér úr herbergi Elísama ríkisritara. Því næst las Jahúdí hana í áheyrn konungs og allra embættismannanna sem stóðu umhverfis hann.
Konungur dvaldist í vetrarhöllinni því að þetta var í níunda mánuðinum. Kolaeldur logaði í eldstæðinu fyrir framan hann. Í hvert skipti sem Jahúdí hafði lesið þrjá eða fjóra dálka skar konungur þá af bókrullunni með pennahníf og fleygði í eldinn í eldstæðinu þar til öll bókin var brunnin. Hvorki varð konungur hræddur né þeir af þjónum hans sem heyrðu þessi orð. Enginn þeirra reif klæði sín. Þó að Elnatan, Delaja og Gemaría legðu fast að konungi að brenna ekki bókina hlustaði hann ekki á þá. Hins vegar skipaði konungur konungssyninum Jerahmeel, Seraja Asríelssyni og Selemja Abdeelssyni að sækja Barúk skrifara og Jeremía spámann. En Drottinn faldi þá.
Þegar konungur hafði brennt bókina með boðskapnum, sem Barúk hafði skrifað eftir Jeremía, kom orð Drottins til Jeremía: „Fáðu þér aðra bók og skrifaðu á hana öll þau orð sem voru á hinni fyrri sem Jójakím Júdakonungur brenndi. En um Jójakím Júdakonung skaltu segja: Svo segir Drottinn: Þú brenndir þessa bók og sagðir: Hvers vegna skrifaðir þú á hana að konungurinn í Babýlon mundi koma og eyða þetta land og afmá þaðan menn og skepnur? Þess vegna segir Drottinn þetta um Jójakím konung í Júda: Hann skal engan niðja eiga er sitji í hásæti Davíðs. Lík hans mun liggja úti í hitanum á daginn og í kuldanum um nætur. Ég dreg hann sjálfan, niðja hans og þjóna til ábyrgðar vegna sektar þeirra. Ég sendi allt það böl yfir þá og íbúana í Jerúsalem og Júda, sem ég hótaði þeim og þeir skeyttu ekki um.“
Þá tók Jeremía aðra bók og fékk hana Barúk Neríasyni skrifara. Hann ritaði á bókina það sem Jeremía las fyrir, allt það sem staðið hafði á bókinni sem Jójakím Júdakonungur hafði brennt. Enn fremur var bætt við miklum boðskap sem líktist hinum.
Biblíulestur 14. október – Jer 30.12–24
Svo segir Drottinn: Brot þitt verður ekki grætt, sár þitt ekki læknað. Enginn leitar réttar þíns. Meinið hefst illa við, þú færð enga bót. Allir vinir þínir hafa gleymt þér, [...]
Biblíulestur 13. október – Jer 30.1–11
Orðið sem kom frá Drottni til Jeremía: Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: Skráðu í bók öll þau orð sem ég hef flutt þér. Því að þeir dagar koma, segir Drottinn, [...]
Biblíulestur 12. október – Jer 29.16–32
Svo segir Drottinn um konunginn sem situr í hásæti Davíðs og allt fólkið sem býr í þessari borg, bræður yðar sem ekki þurftu að fara í útlegð með yður: Svo [...]
Biblíulestur 11. október – Jóh 9.1–11
Á leið sinni sá Jesús mann sem var blindur frá fæðingu. Lærisveinar hans spurðu hann: „Rabbí, hvort hefur þessi maður syndgað eða foreldrar hans fyrst hann fæddist blindur?“ Jesús svaraði: [...]
Biblíulestur 10. október – Slm 130 og 131
Sálmur 130 Úr djúpinu ákalla ég þig, Drottinn, Drottinn, heyr þú raust mína, lát eyru þín hlusta á grátbeiðni mína. Ef þú, Drottinn, gæfir gætur að misgjörðum, Drottinn, hver fengi [...]
Biblíulestur 9. október – Jer 29.1–15
Þannig hljóðar bréfið sem Jeremía spámaður sendi frá Jerúsalem til þeirra sem eftir voru af öldungum útlaganna, til prestanna, spámannanna og alls fólksins sem Nebúkadnesar hafði flutt í útlegð frá [...]