Á næstu dögum munu greiðsluseðlar vegna félagsgjalds í Hinu íslenska biblíufélagi birtast í heimabönkum félagsfólks. Félagsgjaldið er 3.000 krónur á ári. Við vonum að félagsfólk bregðist við og greiði með gleði. Ef þú vilt slást í hópinn og gerast félagi í Biblíufélaginu, þá er hægt að skrá sig á slóðinni https://biblian.is/vertu-med/.

Félagsfólk sem jafnframt er Bakhjarlar Biblíunnar fá ekki greiðsluseðil í þessari viku en fá mánaðarlega greiðsluseðilinn í kringum 25. júní. Einnig er hægt að gerast Bakhjarl Biblíunnar með 1000 króna mánaðarlegu framlagi með að skrá sig á https://biblian.is/2020/02/09/bakhjarlar-bibliunnar/.

Við skiljum að aðstæður fólks geta breyst og ef þú þarft að draga félagsaðild þína til baka, eða kannast ekki við að vera félagi í Biblíufélaginu en fékkst greiðsluseðil, þá viljum við biðja þig að hafa samband á https://biblian.is/hafa-samband/.