Forsíða2025-02-09T12:16:20+00:00
Áminning um útgáfuhóf vegna hljóðbókar Biblíunnar 31. ágúst kl 11:00 í Lindakirkju.
Smelltu til að hlusta á Biblíuna á hljóðbók!
Smelltu til að verða félagi í Biblíufélaginu!
Smelltu til að styrkja Biblíufélagið mánaðarlega!
Smelltu til kaupa Biblíu!
Kynntu þér barnabiblíuappið!
Upplýsingar um Biblíuapp!

Sjálfstætt biblíufélag í Serbíu stofnað

Sunnudagur 22. desember 2013|

Hinn 25. nóvember síðastliðinn var sjálfstætt biblíufélag stofnsett í Serbíu. Allt frá árinu 1945 þegar starf biblíufélaganna hófst að nýju í fyrrum Júgóslavíu, hefur starfið byggst upp í kringum þjónustu frá Breska og erlenda biblíufélaginu. Hefur sú starfsemi gjarnan átt undir högg [...]

Biblían í heild á skillúk

Föstudagur 15. nóvember 2013|

Malakal, nóvember 2013. Í lýðveldinu Suður-Súdan er komin út fyrsta þýðing Biblíunnar í heild á eitt svæðistungumála landsins frá sjálfstæði þess árið 2011. Eftir 35 ára þýðingarvinnu, með töfum vegna borgarstyrjaldarinnar í Súdan, er Biblían á skillúk komin út. „Margar konur tala aðeins [...]

Biblíur til Kína

Fimmtudagur 17. október 2013|

Það er erfitt að segja til um það hversu margt fólk í Kína er kristið. Þar eru bæði opinberar kirkjur og söfnuðir og eins óopinberir heimilissöfnuðir, en líklega eru um 100 milljónir kristinna manna í landinu. Sá fjöldi vex þó stöðugt. Í [...]

Hátíð vonar

Þriðjudagur 10. september 2013|

Hátíð vonar verður haldin í Laugardalshöll dagana 28.-29. september 2013. Franklin Graham, sonur Billys Graham verður ræðumaður og bandaríski tónlistarmaðurinn Michael W. Smith kemur einnig fram. Þá mun Óskar Einarsson stjórna stórum kór sem syngur á hátíðinni.Franklin Graham og faðir hans eru í forsvari fyrir [...]

Aðalfundur 2013

Sunnudagur 21. apríl 2013|

Aðalfundur Hins íslenska biblíufélags verður haldinn í Safnaðarheimili Dómkirkjunnar Lækjargötu 14a, þriðjudaginn 23. apríl 2013, klukkan 20.00. Dagskrá fundarins: Aðalfundarstörf í samræmi við 10. gr. laga félagsins. Önnur mál Stjórn Hins íslensk biblíufélags.

Biblían á öllum tungumálum er innan seilingar

Mánudagur 28. janúar 2013|

„Ef við höldum dampi gætum við séð einhvern hluta Biblíunnar á öllum tungumálum árið 2033” segir Michael Perreau framkvæmdastjóri Sameinuðu biblíufélaganna, UBS, í nýlegu viðtali. Góðu fréttirnar af biblíuþýðingum eru þessar: Þær ganga hraðar, sem þýðir að árlega fá fleiri hópar fólks [...]

Hörmulegur atburður í Gaza

Föstudagur 19. október 2012|

Þau hörmulegu tíðindi gerðust á laugardaginn 6. október að yfirmanni verslunar Biblíufélagsins í Palestínu sem er í Gaza var rænt og hann myrtur. Rami Ayyad var numinn á brott eftir lokun verslunarinnar um kl. 16:30. Fyrstu fréttir bárust fjölskyldu hans þegar hann [...]

80 milljón Biblía í Nanjing

Miðvikudagur 17. október 2012|

Í 25 ár hefur Biblíufélagið í Noregi stutt við útgáfu 80 milljón Biblía í Nanjing. Íslenska biblíufélagið styður við þetta starf. Á hverju ári eru framleiddar um 12 milljónir af Biblíum og eftirspurnin eftir þeim er gríðarleg. Kína er fjölmennasta þjóð í [...]

Biblíuskilningur

Miðvikudagur 17. október 2012|

Í umræðu um kennslu um kristin fræði í skólum, er oft bent á mikilvægi þess að nemendur þekki þann menningararf sem þeir tilheyra. Á Íslandi, eins og annars staðar í hinum kristna heimi, er fólki nauðsynlegt að þekkja til Biblíunnar til þess [...]

Biblían í kilju

Þriðjudagur 3. apríl 2012|

Nú fyrir páskana kom Biblían út í nýrri kiljuútgáfu en hennar hefur verið beðið um nokkurt skeið. Er brotið sérlega handhægt og mun án nokkurs vafa falla vel að þörfum þeirra sem lesa mikið og reglulega í Biblíunni. Við hönnun kápunnar var hugað [...]

Aðalfundur 2012

Föstudagur 10. febrúar 2012|

Aðalfundur Hins íslenska biblíufélags verður haldinn í safnaðarheimili Lindakirkju, sunnudaginn 12. febrúar næstkomandi og hefst hann að lokinni guðsþjónustu kl. 15:20. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, sbr. 10. grein laga félagsins.

Biblían hjálpar mér að keppa eftir kærleikanum!

Þriðjudagur 2. ágúst 2011|

Ítarlegar skýrslur áætla að meira en 153 milljónir barna séu munaðarlausar í heiminum í dag. Þessi börn eru hrædd, yfirgefin og viðkvæm. Hið bandaríska biblíufélag hefur afhent þúsundum munaðarlausra barna Biblíur, meðal annars í Perú, Bangladess, Úkraínu, Nepal, Indlandi og Afríku. Drengur [...]

Fara efst