Aðalfundur og ársskýrsla
Aðalfundur Hins íslenska Biblíufélags var haldinn mánudaginn 27. apríl 2026. Séra Grétar Halldór Gunnarsson setti aðalfundinn með lestri úr orði Guðs og bæn. Matthías Guðmundsson var kosinn fundarstjóri og Karítas Hrundar Pálsdóttir ritari. Grétar Halldór Gunnarsson flutti skýrslu stjórnar þar sem [...]
Leiðrétting vegna eldri fréttar – Bretland: Kirkjusókn eykst verulega…
Þann 15. apríl 2025 birtum við hér á vefnum frétt um rannsókn YouGov, sem var unnin fyrir Breska og erlenda biblíufélagið. Samkvæmt rannsókninni hafði kirkjusókn aukist verulega, sér í lagi meðal ungs fólks á aldrinum 18-24 ára. Nú hefur komið í ljós að [...]
Aðalfundur Hins íslenska biblíufélags 2026
Aðalfundur Hins íslenska biblíufélags verður haldinn í Lindakirkju í Kópavogi, mánudaginn 27. apríl n.k. klukkan 17:15. Á dagskrá verða venjuleg aðalfundarstörf. Stjórn Hins íslenska biblíufélags
Biblían á tímum gervigreindar
Sífellt fleiri leita aðstoðar gervigreindar við að lesa og skilja Biblíuna. Ný rannsókn bendir til þess að vinsælir gervigreindar spjallþjónar sem sérhæfa sig í Biblíufræðslu séu hlutdrægir þegar kemur að guðfræði. Þannig hefur rannsókn Breska og erlenda biblíufélagsins (BFBS) á gervigreindar spjallþjónum, [...]
B+ var dreift með Morgunblaðinu í dag
B+ fréttabréf Biblíufélagsins kom út í dag fimmtudaginn 5. febrúar og var dreift í hús á höfuðborgarsvæðinu nú í morgun. Félagsfólk Biblíufélagsins á landsbyggðinni fær B+ í pósti um miðjan febrúar. Hægt er að sækja blaðið á pdf-formi með því að [...]
Endurprentun á vinsælum Biblíum
Biblíufélagið hefur endurútgefið Biblíur í mjúku bandi og þremur litum, hvítu, rauðu og svörtu. Þær komu upphaflega út hjá JPV/Forlaginu árið 2007 en seldust upp á liðnu ári. Nú er hægt að kaupa þær í vefverslun Biblíufélagsins, www.biblian.is/verslun. [...]
Biblíulestraskrá 2026
Biblíulestraskrá fyrir 2026 er komin út og var dreift til félagsfólks og í fjölmargar kirkjur í lok desember. Hægt er að nálgast Biblíulestrarskrána á PDF-formi með að smella á hnappinn hér fyrir neðan. Eins má fá prentað eintak í Kirkjuhúsinu á [...]
Safnanir Biblíufélagsins – Pókot og Haítí
Biblíufélagið stóð að tveimur söfnunum nú í haust. Annars vegar var safnað til kaupa á Biblíum fyrir Pókot-samfélagið í Kenía. En Íslendingar hafa komið að og stutt við kristniboð og hjálparstarf í Pókot-héraði á landamærum Kenía og Úganda síðan 1978. Söfnunin [...]
Biblían á Spotify
Nú er hægt að hlusta á hljóðbók Biblíunnar á íslensku á Spotify. Í dag opnaði Spotify hljóðbókarveituna sína fyrir notendur, m.a. í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi, Íslandi og Mónakó. Spotify Premium notendur geta hlustað án endurgjalds í allt að 12 klst á mánuði. [...]
Söfnun fyrir Pókot samfélagið gengur vel
Um miðjan ágústmánuð leituðu Biblíufélagið og Kristniboðssambandið til velunnara um aðstoð við kaup á Biblíum fyrir Pókot-samfélagið í Kenía. Íslendingar hafa komið að og stutt við kristniboð og hjálparstarf í Pókot-héraði á landamærum Kenía og Úganda síðan 1978. Helstu verkefni Kristniboðssambandsins [...]
Biblíur fyrir Pókot-samfélagið í Kenía
Kristniboðssambandið og Hið íslenska biblíufélag leita til þín um aðstoð við kaup á Biblíum fyrir Pókot-samfélagið í Kenía. Íslendingar hafa komið að og stutt við kristniboð og hjálparstarf í Pókot-héraði á landamærum Kenía og Úganda síðan 1978. Helstu verkefni Kristniboðssambandsins allra [...]
150 milljón Biblíuritum dreift á árinu 2024
Á liðnu ári (2024) voru 150 milljón Biblíurit gefin eða seld um allan heim, ýmist af Biblíufélögum eða í samstarfi við Biblíufélög innan Sameinuðu biblíufélaganna. Biblían í heild var gefin eða seld í 22,5 milljón eintökum, þá var 8,6 milljón Nýja testamenta [...]












