Aðalfundur Hins íslenska Biblíufélags var haldinn mánudaginn 27. apríl 2026. Séra Grétar Halldór Gunnarsson setti aðalfundinn með lestri úr orði Guðs og bæn. Matthías Guðmundsson var kosinn fundarstjóri og Karítas Hrundar Pálsdóttir ritari.

Grétar Halldór Gunnarsson flutti skýrslu stjórnar þar sem stiklað var á stóru yfir verkefni félagsins á liðnu ári. Guðni Már Harðarson kynnti ársreikning félagsins, en félagið var skilaði hagnaði á liðnu ári eftir að tekið var tillit til fjármagnstekna. Guðni Már lagði áherslu á að styrkja þyrfti fastar tekjur félagsins með fjölgun félagsfólks og bakhjarla sem styðja við félagið með reglubundnum hætti.

Kjósa þurfti tvo einstaklinga í stjórn félagsins. Stjórnarfólkið sem var að ljúka sínu kjörtímabili gaf kost á sér að nýju, Sr. Sveinn Valgeirsson og Kristján Þór Gunnarsson. Þeir voru sjálfkjörnir þar sem ekki voru aðrir sem gáfu kost á sér.

Þorsteinn Arnórsson og Pétur Þorsteinsson voru kjörin félagslegir endurskoðendur.