Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 20. september – Slm 106.13–23

En þeir gleymdu fljótt verkum hans,
biðu ekki ráða hans.
Þeir fylltust græðgi í eyðimörkinni
og freistuðu Guðs í auðninni.
Hann uppfyllti ósk þeirra
en sendi þeim tærandi sjúkdóm.
Þá öfunduðu þeir Móse í herbúðunum
og Aron, hinn heilaga Drottins.
Jörðin opnaðist og gleypti Datan
og huldi flokk Abírams.
Eldur kviknaði í flokki þeirra,
logi gleypti hina óguðlegu.
Þeir gerðu kálf við Hóreb
og féllu fram fyrir steyptu líkneski,
létu vegsemd sína í skiptum
fyrir mynd af nauti sem bítur gras.
Þeir gleymdu Guði, frelsara sínum,
sem vann máttarverk í Egyptalandi,
gerði undur í landi Kams,
ógnvekjandi dáðir við Sefhafið.
Hann hugðist tortíma þeim
en Móse, sem hann hafði útvalið,
gekk á milli og bægði frá tortímandi reiði hans.

Biblíulestur 30. maí – Okv 22.1-16

1Gott mannorð er dýrmætara en mikill auður, vinsældir eru betri en silfur og gull. 2Ríkur og fátækur mætast en Drottinn skapaði báða. 3Vitur maður sér ógæfuna og felur sig en [...]

Biblíulestur 29. maí – Jer 20.7-18

Harmljóð spámannsins 7Þú blekktir mig, Drottinn, og ég lét blekkjast, þú tókst mig tökum og barst hærri hlut. Ég verð sífellt að athlægi, allir hæða mig. 8Í hvert skipti sem [...]

Biblíulestur 27. maí – Jer 18.18-19.9

18. kafli Tilræði við spámanninn 18 Þeir sögðu: „Komið, vér skulum brugga ráð gegn Jeremía því að ekki brestur prestinn kenningu, spekinginn ráð né spámanninn orð. Komið, vér skulum ráðast [...]

Biblíulestur 26. maí – Jer 18.1-17

Jeremía og leirkerasmiðurinn 1 Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni: 2 Farðu nú niður í hús leirkerasmiðsins. Þar mun ég láta þig heyra orð mín. 3 Ég gekk því [...]

Biblíulestur 25. maí – Jer 17.14-27

14Lækna mig, Drottinn, svo að ég verði heill, hjálpa mér svo að ég bjargist því að þú ert lofsöngur minn. 15Nú spyrja menn mig: „Hvar er orð Drottins? Nú ætti [...]

Fara efst