Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 21. september – Lúk 17.11–19

Svo bar við á ferð Jesú til Jerúsalem að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. Og er hann kom inn í þorp nokkurt mættu honum tíu líkþráir menn. Þeir stóðu álengdar, hófu upp raust sína og kölluðu: „Jesús, meistari, miskunna þú oss!“
Jesús sá þá og sagði við þá: „Farið og sýnið yður prestunum.“ Þeir héldu af stað og nú brá svo við að þeir urðu hreinir. En einn þeirra sneri aftur er hann sá að hann var heill orðinn og lofaði Guð hárri raustu. Hann féll fram að fótum Jesú og þakkaði honum. En hann var Samverji. Jesús sagði: „Urðu ekki allir tíu hreinir? Hvar eru hinir níu? Urðu engir til þess að snúa aftur að gefa Guði dýrðina nema þessi útlendingur?“ Síðan mælti Jesús við hann: „Statt upp og far leiðar þinnar. Trú þín hefur bjargað þér.“

Biblíulestur 5. júní – Jer 22.24-23.8

22. kafli Jójakín 24 Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn, jafnvel þótt Konja Jójakímsson Júdakonungur væri innsiglishringur á hægri hendi minni mundi ég slíta þig þaðan. 25 Ég sel [...]

Biblíulestur 4. júní – Jer 22.13-23

Jójakím 13Vei þeim sem byggir hús sitt með ranglæti, sali sína með rangindum og lætur landa sinn þræla án launa og greiðir honum ekkert. 14Hann segir: „Ég byggi mér stórt [...]

Biblíulestur 3. júní – Jer 22.1-12

Konungar varaðir við 1 Svo segir Drottinn: Farðu niður að höll Júdakonungs og segðu: 2 Hlýddu á orð Drottins, Júdakonungur, sem situr í hásæti Davíðs, þú sjálfur, hirðmenn þínir og [...]

Biblíulestur 2. júní – Jer 21.1-14

Jerúsalem mun falla 1 Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni þegar Sedekía konungur sendi Pashúr Malkíason og Sefanía prest Maasejason til hans með þessa orðsendingu: 2 Leitaðu ráða hjá [...]

Fara efst