Biblíulestur – 8. ágúst – 1Jóh 5.13–21
Þetta hef ég skrifað ykkur sem trúið á nafn Guðs sonar til þess að þið vitið að þið eigið eilíft líf. Og þetta er traustið sem við berum til hans: Ef við biðjum um eitthvað eftir hans vilja, þá heyrir hann okkur. Og ef við vitum að hann bænheyrir okkur um hvað sem við biðjum, þá vitum við að við höfum þegar öðlast það sem við báðum hann um.
Ef einhver sér bróður sinn eða systur drýgja synd, sem leiðir ekki til dauða, þá skal hann biðja Guð og hann mun gefa líf þeim sem syndgar ekki til dauða. Til er synd sem leiðir til dauða. Fyrir henni segi ég ekki að hann skuli biðja. Allt ranglæti er synd en til er synd sem ekki leiðir til dauða.
Við vitum að börn Guðs syndga ekki, hann sem er sonur Guðs varðveitir þau og hinn vondi snertir þau ekki.
Við vitum að við erum Guðs eign og allur heimurinn er á valdi hins vonda. Við vitum að sonur Guðs er kominn og hefur gefið okkur skilning til þess að við þekkjum sannan Guð. Við lifum í hinum sanna Guði, í syni hans Jesú Kristi. Hann er hinn sanni Guð og eilífa lífið.
Börnin mín, gætið ykkar á falsguðunum.
Biblíulestur 27. apríl – Jer 9.9-21
9Hefjið grát og kvein yfir fjöllunum og harmljóð yfir beitilöndunum í auðninni því að þau eru sviðin, enginn fer þar um, baul hjarðanna heyrist þar ekki lengur. Fuglar himinsins og [...]
Biblíulestur 26. apríl – Jóh 10.11-16
11 Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina. 12 Sá sem er leigður og hvorki er hirðir né á sauðina, hann flýr og yfirgefur [...]
Biblíulestur 25. apríl – Okv. 21.16-31
16Sá maður sem villist af vegi viskunnar mun brátt hvílast í samneyti framliðinna. 17Öreigi verður sá sem sólginn er í skemmtanir, sá sem sólginn er í vín og olíu verður [...]
Biblíulestur 24. apríl – Jer 8.18-9.8
8. kafli Harmljóð vegna þjóðarinnar 18Ég er yfirkominn af sorg, hjarta mitt er þjakað. 19Hlustið. Kvein dótturinnar, þjóðar minnar, heyrist um þvert og endilangt landið. Er Drottinn ekki á Síon, [...]
Biblíulestur 23. apríl – Lúk 17.11-19
Hvar eru hinir níu? 11 Svo bar við á ferð Jesú til Jerúsalem að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. 12 Og er hann kom inn í þorp [...]
Biblíulestur 22. apríl – Jer 8.8-17
Rangtúlkuð lög 8Hvernig getið þér sagt: „Vér erum vitrir, lögmál Drottins er hjá oss“? Rétt er það. En lygapenni skrifaranna hefur gert það að lygi. 9Hinir vitru hafa orðið sér [...]