Biblíulestur – 9. ágúst – Slm 105.1–15
Þakkið Drottni, ákallið nafn hans,
gerið máttarverk hans kunn meðal þjóðanna.
Syngið honum lof, leikið fyrir hann,
segið frá öllum máttarverkum hans.
Hrósið yður af hans heilaga nafni,
hjarta þeirra sem leita Drottins gleðjist.
Leitið Drottins og máttar hans,
leitið sífellt eftir augliti hans.
Minnist dásemdarverkanna sem hann vann,
tákna hans og dómanna sem hann kvað upp,
þér niðjar Abrahams, þjóns hans,
synir Jakobs sem hann útvaldi.
Hann er Drottinn, Guð vor,
um víða veröld gilda boð hans.
Hann minnist að eilífu sáttmála síns,
fyrirheitanna sem hann gaf þúsund kynslóðum,
sáttmálans sem hann gerði við Abraham
og eiðsins sem hann sór Ísak
og setti sem lög fyrir Jakob,
ævarandi sáttmála fyrir Ísrael.
Hann sagði: „Þér fæ ég Kanaansland,
það skal vera erfðahlutur yðar,“
þegar þeir voru fámennur hópur
og bjuggu þar sem fáliðaðir útlendingar.
Þeir reikuðu frá einni þjóð til annarrar,
frá einu konungsríki til annars.
Hann leið engum að kúga þá
en hegndi konungum þeirra vegna.
„Snertið eigi mína smurðu
og gerið eigi spámönnum mínum mein.“
Biblíulestur 3. maí – Jóh 16.16-23
Hryggð mun snúast í fögnuð 16 Innan skamms sjáið þér mig ekki lengur og aftur innan skamms munuð þér sjá mig.“ 17 Þá sögðu nokkrir lærisveina hans sín á milli: [...]
Biblíulestur 2. maí – Slm 91.1-16
1Sá er situr í skjóli Hins hæsta og dvelst í skugga Hins almáttka 2segir við Drottin: „Hæli mitt og háborg, Guð minn, er ég trúi á.“ 3Hann frelsar þig úr [...]
Biblíulestur 1. maí – Fil 1.27-2.18
1. kafli 27 En hvað sem öðru líður, þá hegðið ykkur eins og samboðið er fagnaðarerindinu um Krist. Hvort sem ég kem og heimsæki ykkur eða ég er fjarverandi vil [...]
Biblíulestur 30. apríl – Fil 1.1-26
Kveðja 1 Páll og Tímóteus, þjónar Krists Jesú, heilsa öllum heilögum í Filippí, sem eru í Kristi Jesú, ásamt biskupum þeirra og djáknum. 2 Náð sé með yður og friður [...]
Biblíulestur 29. apríl – Jer 10.10-25
10En Drottinn er hinn sanni Guð, hann er lifandi Guð og eilífur konungur. Jörðin skelfur fyrir heift hans og þjóðirnar standast ekki reiði hans. 11Um þá skuluð þér segja: Guðum, [...]
Biblíulestur 28. apríl – Jer 9.22-10.9
9. kafli Hin sanna viska 22 Svo segir Drottinn: Hinn vitri hrósi sér ekki af visku sinni, hinn sterki hrósi sér ekki af afli sínu og hinn ríki hrósi sér [...]