Biblíulestur – 24. september – 2Kor 9.6–15
En þetta segi ég: Sá sem sáir sparlega mun og sparlega uppskera og sá sem sáir ríflega mun og ríflega uppskera. Sérhver gefi eins og hann hefur ásett sér í hjarta sínu, ekki með ólund eða með nauðung, því að Guð elskar glaðan gjafara. Guð er þess megnugur að veita ykkur ríkulega allar góðar gjafir til þess að þið í öllu og ávallt hafið allt sem þið þarfnist og getið sjálf veitt ríkulega til allra góðra verka. Eins og ritað er:
Hann miðlaði mildilega,
gaf hinum snauðu,
réttlæti hans varir að eilífu.
Guð sem gefur sáðmanninum sæði og brauð til fæðu mun og gefa ykkur sáð og margfalda það og auka ávöxt réttlætis ykkar. Guð mun auðga ykkur í öllu svo að þið getið jafnan sýnt örlæti. Þá munu margir þakka Guði fyrir gjafirnar sem við komum með frá ykkur. Því að þessi þjónusta, sem þið innið af hendi, bætir ekki aðeins úr skorti hinna heilögu heldur leiðir hún einnig til þess að margir menn þakka Guði. Þegar menn sjá hvers eðlis þessi þjónusta er munu þeir lofa Guð fyrir að þið farið eftir fagnaðarerindi Krists sem þið játið og gefið með ykkur af örlæti bæði þeim og öllum. Og þeir munu biðja fyrir ykkur og þrá ykkur vegna þess að þeir sjá hve ríkulega Guð hefur veitt ykkur náð sína. Þökk sé Guði fyrir sína óumræðilegu gjöf!
Biblíulestur 23. júní – Ef 4.17-32
Nýtt líf 17 Þetta segi ég þá og vitna í nafni Drottins: Þið megið ekki framar hegða ykkur eins og heiðingjarnir hegða sér. Hugsun þeirra er allslaus, 18 skilningur þeirra [...]
Biblíulestur 22. júní – Ef 3.14-4.16
3. kafli Bæn um styrk og skilning 14 Þess vegna beygi ég kné mín fyrir föðurnum, 15 sem hvert faðerni fær nafn af á himni og jörðu, 16 að hann [...]
Biblíulestur 21. júní – Lúk 14.16-24
16 Jesús sagði við hann: „Maður nokkur gerði mikla kvöldmáltíð og bauð mörgum. 17 Er stundin kom að veislan skyldi vera sendi hann þjón sinn að segja þeim er boðnir [...]
Biblíulestur 20. júní – Slm 96.1-14
1Syngið Drottni nýjan söng, syngið Drottni, öll lönd, 2syngið Drottni, lofið nafn hans, kunngjörið hjálpráð hans dag eftir dag. 3Segið frá dýrð hans meðal þjóðanna, frá dásemdarverkum hans meðal allra [...]
Biblíulestur 19. júní – Ef 3.1-13
Leyndardómur Krists opinber 1 Þess vegna er það að ég, Páll, bandingi Krists Jesú vegna ykkar, heiðinna manna, beygi kné mín. 2 Víst hafið þið heyrt um þá náð sem [...]
Biblíulestur 18. júní – Ef 2.1-22
Hólpin af náð 1 Þið voruð dauð vegna afbrota ykkar og synda 2 sem þið lifðuð í áður samkvæmt aldarhætti þessa heims að vilja valdhafans í loftinu, anda þess, sem [...]