Biblíulestur – 19. september – 2Kor 7.1–16
Þar eð við því höfum þessi fyrirheit, elskuð börn mín, þá hreinsum okkur af allri saurgun á líkama og sál og fullkomnum helgun okkar í guðsótta.
Rýmið fyrir mér í hjörtum ykkar. Engum hef ég gert rangt til, engan skaðað, engan féflett. Ég segi það ekki til að áfellast ykkur. Ég hef áður sagt að ég elska ykkur svo að ég vil lifa og deyja með ykkur. Ég treysti ykkur fullkomlega og er hreykinn af ykkur. Ég er fullur bjartsýni og innilegrar gleði í allri þrenging minni.
Þegar ég því var kominn til Makedóníu hafði ég enga eirð í mér heldur var ég á alla vegu aðþrengdur, átök við andstæðinga, ótti innra með mér. En Guð, sem uppörvar beygða, veitti mér kjark þegar Títus kom, já, ekki aðeins með komu hans heldur og með þeirri uppörvun sem hann hafði fengið hjá ykkur. Hann skýrði mér frá þrá ykkar, kveinstöfum ykkar, áhuga ykkar mín vegna svo að ég gladdist við það enn frekar.
Að vísu hef ég hryggt ykkur með bréfinu en ég iðrast þess ekki nú þótt ég iðraðist þess áður þar sem ég sá að þetta bréf hafði hryggt ykkur þótt ekki væri nema um stund. Nú er ég glaður, ekki yfir því að þið urðuð hrygg heldur yfir því að hryggð ykkar leiddi til þess að þið bættuð ráð ykkar. Þið urðuð hrygg Guði að skapi og biðuð því ekki í neinu tjón svo að ég varð ykkur ekki að meini. Sú hryggð sem er Guði að skapi leiðir til þess að menn taki sinnaskiptum, sem engan iðrar, og frelsist en þegar menn hryggjast að hætti heimsins leiðir það til dauða. Sjáið hvernig Guð hefur notað hryggð ykkar. Hún hefur orðið til þess að sýna hve ærukær þið eruð, hve vel þið stóðuð fyrir máli ykkar, hve gröm þið voruð og ótta slegin, hve þið þráðuð að sjá mig, hve rösklega þið tókuð á máli mannsins. Í öllu hafið þið nú sannað að þið voruð vítalaus um þetta. Þótt ég því hafi skrifað ykkur þá var það ekki vegna þess sem óréttinn gerði né hins sem fyrir óréttinum varð. Ég skrifaði til þess að þið gætuð sýnt fyrir augliti Guðs hversu heils hugar þið standið með mér. Þetta jók mér kjark.
En auk hvatningarinnar, sem ég fékk, gladdi það mig allra mest hve Títus varð glaður. Þið hafið öll róað huga hans. Því að hafi ég í nokkru stært mig af ykkur við hann þá hef ég ekki þurft að blygðast mín. Já, eins og allt var sannleika samkvæmt, sem ég hef talað við ykkur, þannig hefur og hrós mitt um ykkur við Títus reynst sannleikur. Og hjartaþel hans til ykkar er því hlýrra sem hann minnist hlýðni ykkar allra, hversu þið tókuð á móti honum með ugg og ótta. Það gleður mig að ég get í öllu borið traust til ykkar.
Biblíulestur 24. maí – Jóh 15.26-16.4
15. kafli 26 Þegar hjálparinn kemur, sem ég sendi yður frá föðurnum, sannleiksandinn, er út gengur frá föðurnum, mun hann vitna um mig. 27 Þér skuluð einnig vitni bera því [...]
Biblíulestur 23. maí – Slm 94.1-15
1Drottinn, Guð hefndarinnar, Guð hefndarinnar, birst þú í ljóma. 2Rís þú upp, dómari jarðar, endurgjald drembilátum breytni þeirra. 3Hve lengi, Drottinn, mega guðlausir, hve lengi mega guðlausir fagna? 4Þeir ausa [...]
Biblíulestur 22. maí – Jer 16.19-17.13
16. kafli Framandi þjóðir snúa til Drottins 19Drottinn, styrkur minn og vígi, athvarf mitt á degi neyðarinnar. Til þín koma þjóðirnar frá endimörkum jarðar og segja: „Arfur feðra vorra var [...]
Biblíulestur Uppstigningardagur – Mark 16.14-20
14 Seinna birtist Jesús þeim ellefu þegar þeir sátu til borðs og ávítaði þá fyrir vantrú þeirra og þverúð hjartans, að þeir hefðu ekki trúað þeim er sáu hann upp [...]
Biblíulestur 20. maí – Jer 16.1-18
Ævi spámannsins, tákn fyrir þjóðina 1 Orð Drottins kom til mín: 2 Þú skalt ekki taka þér eiginkonu og hvorki eignast syni né dætur á þessum stað. 3 Því að [...]
Biblíulestur 19. maí – Jer 15.12-21
12Verður járn mölbrotið, járn að norðan, og eir? 13Ég framsel auð þinn og fjársjóði sem herfang, það er endurgjald fyrir allar syndir þínar sem þú hefur drýgt um allt land [...]