Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 18. september – 2Kor 6.1–18

Sem samverkamaður Krists hvet ég ykkur einnig að þið látið ekki náð Guðs, sem þið hafið þegið, verða til einskis. Hann segir:
Á hagkvæmri tíð bænheyrði ég þig,
og á hjálpræðisdegi hjálpaði ég þér.

Nú er hagkvæm tíð, nú er hjálpræðisdagur. Í engu vil ég gefa neinum tilefni til ásteytingar, ég vil ekki að þjónusta mín sæti lasti. Í öllu læt ég sjást að ég er þjónn Guðs: Með miklu þolgæði í þrengingum, nauðum og andstreymi, þegar ég hef mátt þola barsmíðar, verið í fangelsi, orðið fyrir aðsúg, í erfiði mínu, andvökum og sulti, með grandvarleik, þekkingu, þolinmæði og mildi, með heilögum anda, með falslausum kærleika, með orði sannleikans, með krafti Guðs, með vopnum réttlætisins til sóknar og varnar, í heiðri og vanheiðri, lasti og lofi. Þótt talinn sé villumaður segi ég sannleikann, sagður óþekktur en er alþekktur, kominn í dauðann og samt lifi ég, tyftaður og þó ekki deyddur, hryggur en þó ávallt glaður, fátækur en auðga þó marga, öreigi en á þó allt.
Ég tala frjálslega við ykkur, Korintumenn. Rúmt er um ykkur í hjarta mínu. Ekki er þröngt um ykkur hjá mér en í hjörtum ykkar er þröngt. En svo að sama komi á móti – ég tala eins og við börn mín – þá látið þið líka verða rúmgott hjá ykkur.
Dragið ekki ok með vantrúuðum. Hvað er sameiginlegt með réttlæti og ranglæti eða með ljósi og myrkri? Hvað eiga Kristur og Belíar sameiginlegt? Hvað eiga trúaðir sameiginlegt með vantrúuðum? Hvernig getur musteri Guðs þolað skurðgoð? Við erum musteri lifanda Guðs eins og Guð hefur sagt:
Ég mun búa meðal þeirra og dveljast hjá þeim
og ég mun vera Guð þeirra
og þeir munu vera lýður minn.

Þess vegna segir Drottinn:
Farið burt frá þeim og skiljið ykkur frá þeim.
Snertið ekki neitt óhreint og ég mun taka ykkur að mér
og ég mun vera ykkur faðir
og þið munuð vera mér synir og dætur,
segir Drottinn alvaldur.

Biblíulestur 18. maí – Jer 15.1-11

Óhjákvæmileg hegning 1 Drottinn sagði við mig: Þó að Móse og Samúel stæðu fyrir augliti mínu vildi ég ekki skipta mér af þessu fólki. Rektu þá frá augliti mínu, þeir [...]

Biblíulestur 16. maí – Slm 93.1-5

1Drottinn er konungur, skrýddur hátign, Drottinn er skrýddur, gyrtur mætti. Heimurinn er stöðugur, haggast ekki. 2Hásæti þitt stendur stöðugt frá öndverðu, frá eilífð ert þú. 3Fljótin hófu upp, Drottinn, fljótin [...]

Biblíulestur 15. maí – Jer 14.10-22

10 Svo segir Drottinn um þessa þjóð: Þeir hafa gaman af að eigra um stefnulaust, þeir hvíla ekki fæturna. En Drottinn gleðst ekki yfir þeim, nú minnist hann sektar þeirra [...]

Biblíulestur 13. maí – Jer 13.1-21

Línbeltið 1 Drottinn sagði við mig: Farðu og kauptu þér línbelti, hnýttu það um lendar þér en láttu það ekki koma í vatn. 2 Ég keypti þá beltið samkvæmt boði [...]

Fara efst