Biblíulestur – 17. september – 2Kor 5.11–21
Með því að ég nú veit hvað það er að óttast Drottin leitast ég við að sannfæra menn. En Guð gjörþekkir mig, ég vona að þið gerið það einnig í hjörtum ykkar. Ekki er ég enn farinn að mæla með sjálfum mér við ykkur heldur er ég að gefa ykkur tilefni til að miklast af mér svo að þið getið svarað þeim sem hrósa sér af hinu ytra en ekki af hjartaþelinu. Enda þótt ég hafi fallið í leiðslu og talað tungum þá varðar það Guð. Þegar ég er með sjálfum mér þá er það vegna ykkar. Kærleiki Krists knýr mig því að ég hef ályktað svo: Ef einn er dáinn fyrir alla þá eru allir dánir. Og hann er dáinn fyrir alla til þess að þeir sem lifa lifi ekki framar sjálfum sér heldur honum sem fyrir þá er dáinn og upprisinn.
Þannig met ég héðan í frá engan að mannlegum hætti. Þótt ég og hafi þekkt Krist sem mann þekki ég hann nú ekki framar þannig. Ef einhver er í Kristi er hann orðinn nýr maður, hið liðna varð að engu, nýtt er orðið til. Allt er frá Guði sem sætti mig við sig fyrir Krist og gaf mér þjónustu sáttargerðarinnar. Því að það var Guð sem í Kristi sætti heiminn við sig er hann tilreiknaði mönnum ekki afbrot þeirra og fól mér að boða orð sáttargjörðarinnar.
Ég er því erindreki Krists sem Guð notar til að hvetja ykkur. Ég bið í orðastað Krists: Látið sættast við Guð. Guð dæmdi Krist, sem þekkti ekki synd, sekan í okkar stað til þess að hann gerði okkur réttlát í Guðs augum.
Biblíulestur 12. maí – Jer 12.7-17
Harmur Guðs yfir arfleifð sinni 7Ég hef yfirgefið hús mitt, ég hef hafnað erfðahlut mínum, ég hef ofurselt ástvin minn fjandmönnum sínum. 8Arfleifð mín er orðin eins og ljón í [...]
Biblíulestur 11. maí – Jer 11.15-12.6
11. kafli Röng fórnarþjónusta 15Hvað vill ástvinur minn í hús mitt? Hann hefur svikið mig. Geta loforð og heilagt fórnarkjöt bægt frá þér bölinu svo að þú getir fagnað? 16Drottinn [...]
Biblíulestur 10. maí – Jóh 16.5-15
Verk andans Ég hef ekki sagt yður þetta frá öndverðu af því ég var með yður. 5 En nú fer ég til hans sem sendi mig og enginn yðar spyr [...]
Biblíulestur 9. maí – Slm 92.1-16
1 Sálmur. Hvíldardagsljóð. 2Gott er að lofa Drottin, lofsyngja nafni þínu, þú Hinn hæsti, 3að kunngjöra miskunn þína að morgni og trúfesti þína um nætur 4á tístrengjað hljóðfæri og hörpu [...]
Biblíulestur 8. maí – Jer 11.1-14
Sáttmálinn rofinn 1 Orðið sem kom til Jeremía frá Drottni: 2 Heyr ákvæði þessa sáttmála og flyttu þau Júdamönnum og Jerúsalembúum. 3 Segðu við þá: Svo segir Drottinn, Guð Ísraels: [...]
Biblíulestur 7. maí – Fil 4.10-23
Þakkir 10 Ég gleðst mjög og þakka Drottni fyrir að hagur ykkar hefur loks batnað svo aftur að þið gátuð hugsað til mín. Að sönnu hafið þið hugsað til mín [...]