Biblíulestur – 2. ágúst – Slm 104.19–35
Þú gerðir tunglið, sem ákvarðar tíðirnar,
og sólina sem veit hvenær hún á að ganga til viðar.
Þú sendir myrkrið, þá verður nótt
og öll skógardýrin fara á stjá.
Ljónin öskra eftir bráð
og krefjast ætis af Guði.
Þegar sólin rís draga þau sig í hlé
og leggjast í bæli sín.
Þá fer maðurinn út til starfa sinna
og vinnur þar til kvöldar.
Hversu mörg eru verk þín, Drottinn?
Þú vannst þau öll af speki.
Jörðin er full af því sem þú hefur skapað.
Þar er hafið, mikið og vítt á alla vegu.
Þar er óteljandi grúi,
smá dýr og stór.
Þar fara skipin um
og Levjatan er þú hefur skapað til þess að leika sér þar.
Öll vona þau á þig
að þú gefir þeim fæðu þeirra á réttum tíma.
Þú gefur þeim og þau tína,
þú lýkur upp hendi þinni og þau mettast gæðum.
Þú byrgir auglit þitt, þá skelfast þau,
þú tekur aftur anda þeirra, þá andast þau
og hverfa aftur til moldarinnar.
Þú sendir út anda þinn, þá verða þau til
og þú endurnýjar ásjónu jarðar.
Dýrð Drottins vari að eilífu,
Drottinn gleðjist yfir verkum sínum,
hann sem lítur til jarðar svo að hún nötrar,
sem snertir við fjöllunum svo að úr þeim rýkur.
Ég vil ljóða um Drottin meðan lifi,
lofsyngja Guði mínum meðan ég er til.
Ó, að mál mitt mætti falla honum í geð.
Ég gleðst yfir Drottni.
Ó, að syndarar mættu hverfa af jörðinni
og óguðlegir ekki vera til framar.
Lofa þú Drottin, sála mín.
Hallelúja.
Biblíulestur 22. mars – Jóh 6.1-15
Jesús mettar 1 Eftir þetta fór Jesús yfir um Galíleuvatn eða Tíberíasvatn. 2 Mikill fjöldi manna fylgdi honum því þeir sáu þau tákn er hann gerði á sjúku fólki. 3 [...]
Biblíulestur 21. mars – Slm 89.1-19
1 Etansmaskíl Esraíta. 2Um náðarverk Drottins vil ég syngja að eilífu og kunngjöra trúfesti þína með munni mínum frá kyni til kyns. 3Því að ég segi: Náð þín er traust [...]
Biblíulestur 20. mars – Róm 15.1-13
Samhuga að vilja Krists 1 Skylt er okkur, hinum styrku, að bera veikleikann með hinum óstyrku og hugsa ekki aðeins um sjálf okkur. 2Sérhvert okkar hugsi um náunga sinn, það [...]
Biblíulestur 19. mars – Róm 14.13-23
13 Dæmum því ekki framar hvert annað. Hitt skuluð þið ákveða að verða trúsystkinum ykkar ekki til ásteytingar eða falls. 14 Það veit ég með fullri vissu í trúnni á [...]
Biblíulestur 18. mars – Róm 14.1-12
Einn skal annan styrkja 1 Takið á móti trúarveikum án þess að dæma skoðanir þeirra. 2 Einn er þeirrar trúar að alls megi neyta, annar er veikur í trúnni og [...]
Biblíulestur 17. mars – Róm 13.1-14
Skyldur við yfirvöld 1 Hver maður hlýði þeim yfirvöldum sem eru yfir hann sett. Því engin væru yfirvöld ef Guð gæfi þau ekki. Þau sem eru til hefur Guð skipað. [...]