Þakkir

10 Ég gleðst mjög og þakka Drottni fyrir að hagur ykkar hefur loks batnað svo aftur að þið gátuð hugsað til mín. Að sönnu hafið þið hugsað til mín en gátuð ekki sýnt það í verki. 11 Ekki segi ég þetta vegna þess að ég hafi liðið skort því að ég hef lært að láta mér nægja það sem ég hef. 12 Ég kann að búa við lítinn kost, ég kann einnig að hafa allsnægtir. Ég er fullreyndur orðinn í öllum hlutum, að vera mettur og hungraður, að hafa allsnægtir og líða skort. 13 Allt megna ég fyrir hjálp hans sem mig styrkan gerir.
14 Eigi að síður gerðuð þið vel í því að vilja hjálpa mér í þrengingu minni. 15 Þið vitið og, Filippímenn, að þegar ég í upphafi boðaði ykkur fagnaðarerindið og var farinn burt úr Makedóníu hafði enginn annar söfnuður en þið reikning hjá mér yfir gefið og þegið. 16 Meira að segja þegar ég var í Þessaloníku senduð þið mér oftar en einu sinni til nauðsynja minna. 17 Ekki að mér væri svo umhugað um gjöfina sem um ábata þann sem færist ríkulega ykkur til tekna. 18 En nú hef ég fengið allt og hef meira en nóg síðan Epafrodítus færði mér sendinguna frá ykkur, þægilegan ilm, þekka fórn, Guði velþóknanlega. 19 En Guð minn mun uppfylla allar ykkar þarfir og láta Krist Jesú veita ykkur af dýrlegum auðæfum sínum. 20 Guði og föður vorum sé dýrðin um aldir alda. Amen.

Kveðjur

21 Heilsið öllum heilögum í Kristi Jesú. 22 Bræðurnir, sem hjá mér eru, biðja að heilsa ykkur. Allir heilagir biðja að heilsa ykkur en einkanlega þeir sem eru í þjónustu keisarans.
23 Náðin Drottins Jesú Krists sé með anda yðar.