Biblíulestur – 5. desember – Fílm 1.15–25
Vísast hefur hann þess vegna orðið viðskila við þig um stundarsakir, að þú síðan skyldir fá að halda honum eilíflega, ekki lengur eins og þræli heldur þræli fremri, eins og elskuðum bróður. Mér er hann kær bróðir. Hve miklu fremur þó þér bæði sem maður og kristinn. Ef þú því telur mig bróður þinn í trúnni, þá tak þú á móti honum eins og væri það ég sjálfur. En hafi hann eitthvað gert á hluta þinn eða sé hann í skuld við þig, þá fær þú það mér til reiknings. Ég, Páll, rita með eigin hendi: Ég mun greiða. Að ég ekki nefni við þig að þú ert jafnvel í skuld við mig um sjálfan þig. Já, bróðir, unn mér gagns af þér vegna Drottins, endurnær hjarta mitt sakir Krists.
Fullviss um hlýðni þína rita ég til þín og veit að þú munt gera jafnvel fram yfir það sem ég mælist til.
En hafðu líka til gestaherbergi handa mér því að ég vona að þið öðlist þá bænheyrslu að fá mig aftur.
Epafras, sambandingi minn vegna Krists Jesú, biður að heilsa þér. Sömuleiðis Markús, Aristarkus, Demas og Lúkas, samverkamenn mínir.
Náðin Drottins vors Jesú Krists sé með anda yðar.
Biblíulestur 13. september – 2Mós 20.7–17
7 Þú skalt ekki leggja nafn Drottins, Guðs þíns, við hégóma því að Drottinn mun ekki láta þeim óhegnt sem leggur nafn hans við hégóma. 8 Minnstu þess að halda [...]
Biblíulestur 12. september – Lúk 18.28–30
Við yfirgáfum allt 28 Þá sagði Pétur: „Við yfirgáfum allt sem við áttum og fylgdum þér.“ 29 Jesús sagði við þá: „Sannlega segi ég yður að enginn hefur yfirgefið heimili, [...]
Biblíulestur 11. september – Slm 119.161-176
21 161Höfðingjar ofsækja mig að tilefnislausu en hjarta mitt óttast orð þitt. 162Ég gleðst yfir fyrirheiti þínu eins og sá er fær mikið herfang. 163Lygi hata ég og fyrirlít en [...]
Biblíulestur 10. september – 1Mós 9.1–11
Sáttmáli Guðs við Nóa 1 Guð blessaði Nóa og syni hans og sagði við þá: „Verið frjósamir, fjölgið ykkur og fyllið jörðina. 2 Öll dýr jarðarinnar, allir fuglar loftsins, allt [...]
Biblíulestur 9. september – Post 15.7–21
7 Eftir mikla umræðu reis Pétur upp og sagði við þá: „Bræður, þið vitið að fyrir löngu valdi Guð mig úr ykkar hópi til að boða heiðingjum fagnaðarerindið svo að [...]
Biblíulestur 8. september – Post 11.1–18
Frásögn Péturs 1 En postularnir og söfnuðirnir í Júdeu[ heyrðu að heiðingjarnir hefðu einnig tekið við orði Guðs. 2 Þegar Pétur kom upp til Jerúsalem deildu umskurnarmennirnir á hann og [...]