Biblíulestur – 4. desember – Fílm 1.1–14
Páll, bandingi Krists Jesú, og Tímóteus bróðir okkar heilsa elskuðum vini okkar og samverkamanni, Fílemon, svo og Appíu systur okkar og Arkippusi samherja okkar og söfnuðinum sem kemur saman í húsi þínu.
Náð sé með yður og friður frá Guði föður vorum og Drottni Jesú Kristi.
Ég þakka Guði mínum ávallt er ég minnist þín í bænum mínum því að ég heyri um trú þína á Drottni Jesú og um kærleika þinn til hinna heilögu. Ég bið að það sem þú átt og gefur í trúnni styrki þig til þess að skilja allt hið góða sem veitist í Kristi. Mikla gleði og uppörvun hef ég þegið sakir kærleika þíns því að þú, bróðir, hefur endurnært hjörtu heilagra.
Þótt ég gæti með fullri djörfung í Kristi boðið þér að gera það sem skylt er, þá fer ég heldur bónarveg vegna kærleika þíns þar sem ég er eins og ég er, hann Páll gamli, og nú líka bandingi Krists Jesú. Ég bið þig þá fyrir barnið mitt sem ég hef getið í fjötrum mínum, hann Onesímus. Hann var þér áður óþarfur en er nú þarfur bæði þér og mér. Ég sendi hann til þín aftur og er hann þó sem hjartað í brjósti mér. Feginn vildi ég hafa haldið honum hjá mér til þess að hann í þinn stað væri mér til hjálpar í fjötrum mínum vegna fagnaðarerindisins. En án þíns samþykkis vildi ég ekkert gera til þess að velgjörð þín skyldi ekki koma eins og af nauðung heldur af fúsum vilja.
Biblíulestur 7. september – Post 3.12–26
12 Þegar Pétur sá það ávarpaði hann fólkið: „Ísraelsmenn, hví furðar ykkur á þessu eða hví starið þið á okkur eins og við hefðum af eigin mætti eða guðrækni komið [...]
Biblíulestur 6. september – Jóh 21.1–14
Jesús birtist við Tíberíasvatn 1 Eftir þetta birtist Jesús lærisveinunum aftur og þá við Tíberíasvatn. Hann birtist þannig: 2 Þeir voru saman: Símon Pétur, Tómas, kallaður tvíburi, Natanael frá Kana [...]
Biblíulestur 5. september – Mrk 1.29–35
29 Úr samkundunni fóru þeir rakleitt í hús Símonar og Andrésar og með þeim Jakob og Jóhannes. 30 Tengdamóðir Símonar lá með sótthita og sögðu þeir Jesú þegar frá henni. [...]
Biblíulestur 4. september – Slm 119.145-160
19 145Ég hrópa af öllu hjarta, bænheyr mig, Drottinn, ég vil halda lög þín. 146Ég ákalla þig, hjálpa þú mér, að ég megi varðveita fyrirmæli þín. 147Ég er á ferli [...]
Biblíulestur 3. september – Matt 19.23-30
23 En Jesús sagði við lærisveina sína: „Sannlega segi ég ykkur: Torvelt verður auðmanni inn að ganga í himnaríki. 24 Enn segi ég: Auðveldara er úlfalda að fara gegnum nálarauga [...]
Biblíulestur 2. september – Jer 1.4–10
Köllun Jeremía 4 Orð Drottins kom til mín: 5Áður en ég mótaði þig í móðurlífi valdi ég þig. Áður en þú fæddist helgaði ég þig og ákvað að þú yrðir [...]