Biblíulestur – 3. desember – 5Mós 34.1–12
Síðan gekk Móse frá Móabssléttu og á Nebófjall, upp á Pisgatind gegnt Jeríkó, og Drottinn sýndi honum allt landið: Gíleað allt til Dan, allt Naftalí, Efraímsland og Manasse, allt land Júda vestur að Miðjarðarhafi, Negeb og Jórdanardalinn, dalinn við Jeríkó, pálmaborgina allt til Sóar. Síðan sagði Drottinn við hann: „Þetta er landið sem ég hét Abraham, Ísak og Jakobi er ég sagði: Niðjum þínum gef ég það. Ég hef leyft þér að sjá það með eigin augum en þú munt ekki komast þangað yfir um.“
Móse, þjónn Drottins, andaðist þar í Móabslandi eins og Drottinn hafði sagt. Hann gróf hann í dalnum í Móabslandi gegnt Bet Peór. Enginn veit enn þann dag í dag hvar gröf hans er. Móse var hundrað og tuttugu ára þegar hann lést. Sjón hans hafði ekki daprast né heldur hafði þróttur hans þorrið.
Ísraelsmenn syrgðu Móse á Móabssléttu í þrjátíu daga. Þá lauk sorgartímanum eftir Móse.
Jósúa Núnsson var fullur vísdómsanda því að Móse hafði lagt hendur sínar yfir hann. Ísraelsmenn hlýddu honum og breyttu eftir því sem Drottinn hafði boðið Móse.
Annar eins spámaður og Móse kom aldrei aftur fram í Ísrael. Drottinn umgekkst hann augliti til auglitis. Minnist táknanna og stórmerkjanna sem Drottinn sendi hann til að gera í Egyptalandi gegn faraó, hirðmönnum hans og öllu landi hans. Hafið í huga allt sem hann vann með sinni sterku hendi, öll hin miklu og ógnvekjandi verk sem Móse vann í augsýn alls Ísraels.
Biblíulestur 1. september – Opb 20.11–15
Dómurinn 11 Og ég sá mikið hvítt hásæti og þann sem í því sat. Frá augliti hans flúðu himinn og jörð en fundu engan stað. 12Og ég sá þá dauðu, [...]
Biblíulestur 31. ágúst – 1Kor 6.1–8
Málaferli í söfnuðinum 1 Hvernig getur nokkur ykkar, sem á sökótt við annan, fengið af sér að fara með málið fyrir dóm ranglátra en ekki heilagra? 2 Eða vitið þið [...]
Biblíulestur 30. ágúst – 1Kor 3.16–4.5
3. kafli 16 Vitið þið eigi að þið eruð musteri Guðs og að andi Guðs býr í ykkur? 17 Ef nokkur eyðir musteri Guðs mun Guð eyða honum því að [...]
Biblíulestur 29. ágúst – Jóh 9.24–41
24 Nú kölluðu þeir í annað sinn á manninn, sem blindur hafði verið, og sögðu við hann: „Gef þú Guði dýrðina. Við vitum að þessi maður er syndari.“ 25 Hann [...]
Biblíulestur 28. ágúst – Okv 28.14-28
14Sæll er sá maður sem ávallt er var um sig en sá sem herðir hjarta sitt fellur í ógæfu. 15Eins og grenjandi ljón og gráðugur björn, svo er ranglátur drottnari [...]
Biblíulestur 27. ágúst – 1Sam 8.1–9
1 Þegar Samúel var orðinn gamall gerði hann syni sína að dómurum í Ísrael. 2 Frumgetinn sonur hans hét Jóel en sá næsti Abía. Þeir voru dómarar í Beerseba. 3 [...]