Biblíulestur – 2. desember – 5Mós 33.22–29
Um Dan sagði hann:
Dan er ljónshvolpur
sem kemur stökkvandi frá Basan.
Um Naftalí sagði hann:
Naftalí er saddur af velvild,
mettaður af blessun Drottins.
Hann skal hljóta vatnið og Suðurlandið.
Um Asser sagði hann:
Asser sé blessaður umfram hina synina,
hann sé eftirlæti bræðra sinna
og laugi fót sinn olíu.
Slagbrandar þínir skulu vera úr járni og eir,
afl þitt endist þér alla ævi.
Enginn er sem Guð Jesjúrúns
sem ríður yfir himininn þér til hjálpar
og á skýjum í hátign sinni.
Hæli er hinn eldforni Guð,
hér neðra eru eilífir armar hans.
Hann stökkti fjandmönnum undan þér
og sagði: „Eyð þeim.“
Síðan bjó Ísrael óhultur,
lind Jakobs ein sér
í landi auðugu af korni og víni
þar sem himinninn lætur dögg drjúpa.
Heill þér, Ísrael. Hver er sem þú?
Þjóðin sem Drottinn frelsaði.
Hann er skjöldurinn sem ver þig,
sverðið sem veitir þér sigur.
Fjandmenn þínir munu skríða fyrir þér,
þú munt traðka á baki þeirra.
Biblíulestur 26. ágúst – 2Pét 3.8–18
8 En þetta eitt má ykkur ekki gleymast, þið elskuðu, að einn dagur er hjá Drottni sem þúsund ár og þúsund ár sem einn dagur. 9 Ekki er Drottinn seinn [...]
Biblíulestur 25. ágúst – 1Pét 2.18–25
Í fótspor Krists 18 Þjónar, hlýðið húsbændum ykkar og sýnið þeim alla lotningu, ekki einungis hinum góðu og sanngjörnu heldur einnig hinum ósanngjörnu. 19 Ef einhver verður fyrir ónotum og [...]
Biblíulestur 24. ágúst – Jóh 21.15–19
Elskar þú mig 15 Þegar þeir höfðu matast sagði Jesús við Símon Pétur: „Símon Jóhannesson, elskar þú mig meira en þessir?“ Hann svarar: „Já, Drottinn, þú veist að ég elska [...]
Biblíulestur 23. ágúst – Jóh 17.9–23
9 Ég bið fyrir þeim. Ég bið ekki fyrir heiminum heldur fyrir þeim sem þú hefur gefið mér því að þeir eru þínir 10 og allt mitt er þitt og [...]
Biblíulestur 22. ágúst – Mrk 8.22–27
22 Þeir koma nú til Betsaídu. Þar færa menn til Jesú blindan mann og biðja að hann snerti hann. 23 Hann tók í hönd hins blinda, leiddi hann út úr [...]
Biblíulestur 21. ágúst – Slm 119.129-144
17 129Undursamleg eru fyrirmæli þín, þess vegna held ég þau. 130Þegar orð þín ljúkast upp ljóma þau og gera fávísa vitra. 131Ég opna munn minn af áfergju því að ég [...]