Elskar þú mig

15 Þegar þeir höfðu matast sagði Jesús við Símon Pétur: „Símon Jóhannesson, elskar þú mig meira en þessir?“
Hann svarar: „Já, Drottinn, þú veist að ég elska þig.“
Jesús segir við hann: „Gæt þú lamba minna.“ 16 Jesús sagði aftur við hann öðru sinni: „Símon Jóhannesson, elskar þú mig?“
Hann svaraði: „Já, Drottinn, þú veist að ég elska þig.“
Jesús segir við hann: „Ver hirðir sauða minna.“ 17 Hann segir við hann í þriðja sinn: „Símon Jóhannesson, elskar þú mig?“
18 Pétur hryggðist við að hann skyldi spyrja hann þriðja sinni: „Elskar þú mig?“ Hann svaraði: „Drottinn, þú veist allt. Þú veist að ég elska þig.“
Jesús segir við hann: „Gæt þú sauða minna. 19 Sannlega, sannlega segi ég þér: Þegar þú varst ungur bjóstu þig sjálfur og fórst hvert sem þú vildir en þegar þú ert orðinn gamall munt þú rétta út hendurnar og annar býr þig og leiðir þig þangað sem þú vilt ekki.“