Köllun Jeremía

4 Orð Drottins kom til mín:
5Áður en ég mótaði þig í móðurlífi valdi ég þig.
Áður en þú fæddist helgaði ég þig
og ákvað að þú yrðir spámaður fyrir þjóðirnar.
6Ég svaraði: „Drottinn minn og Guð.
Ég er ekki fær um að tala því að ég er enn svo ungur.“
7Þá sagði Drottinn við mig:
„Segðu ekki: Ég er enn svo ungur.
Þú skalt fara hvert sem ég sendi þig
og boða hvað eina sem ég fel þér.
8Þú skalt ekki óttast þá
því að ég er með þér til að bjarga þér,“
segir Drottinn.
9 Síðan rétti Drottinn út hönd sína, snerti munn minn og sagði við mig:
„Hér með legg ég orð mín þér í munn.
10Ég veiti þér vald
yfir þjóðum og ríkjum
til að uppræta og rífa niður, til að eyða og umturna,
til að byggja upp og gróðursetja.“