29 Úr samkundunni fóru þeir rakleitt í hús Símonar og Andrésar og með þeim Jakob og Jóhannes. 30 Tengdamóðir Símonar lá með sótthita og sögðu þeir Jesú þegar frá henni. 31 Hann gekk þá að, tók í hönd henni og reisti hana á fætur. Sótthitinn fór úr henni og hún gekk þeim fyrir beina.
32 Þegar kvöld var komið og sólin sest færðu menn til hans alla þá er sjúkir voru og haldnir illum öndum 33 og allur bærinn var saman kominn við dyrnar. 34 Jesús læknaði marga er þjáðust af ýmsum sjúkdómum og rak út marga illa anda en illu öndunum bannaði hann að tala því að þeir vissu hver hann var.
35 Og árla, löngu fyrir dögun, fór Jesús á fætur og gekk út, vék burt á óbyggðan stað og baðst þar fyrir.