Biblíulestur – 6. desember – Slm 109.16–20
sakir þess að hann gleymdi að sýna gæsku
en ofsótti hinn hrjáða og snauða
og hinn ráðþrota til þess að drepa hann.
Hann hafði ánægju af bölbænum,
þær bitni á honum sjálfum,
blessun gladdi hann ekki,
hún sé honum fjarri.
Hann íklæddist bölvuninni sem kufli,
hún þrengi sér í innyfli hans sem vatn
og í bein hans sem olía,
hún verði honum skikkja sem hylur hann,
belti er hann sífellt gyrðist.
Þetta séu laun hatursmanna minna frá Drottni,
þeirra sem sífellt rægja mig.
Biblíulestur 19. september – Jóh 11.32–45
32 María kom þangað sem Jesús var og er hún sá hann féll hún honum til fóta og sagði við hann: „Drottinn, ef þú hefðir verið hér væri bróðir minn [...]
Biblíulestur 18. september – Slm 120 og Slm 121
Sálmur 120 1 Helgigönguljóð.[ Ég ákalla Drottin í nauðum mínum og hann bænheyrir mig. 2Drottinn, bjarga mér frá ljúgandi vörum og tælandi tungum. 3Hvernig mun hann hegna þér, hvað láta [...]
Biblíulestur 17. september – 2Mós 21.37–22.8
21. kafli 37 Steli maður nauti eða sauði og slátrar eða selur, skal hann bæta naut með fimm nautum og sauðinn með fjórum sauðum. 22. kafli Lög um þjófnað og [...]
Biblíulestur 16. september – 1. Jóh 3.11-24
Elskum hvert annað 11 Því að þetta er sá boðskapur sem þið hafið heyrt frá upphafi: Við eigum að elska hvert annað. 12 Ekki vera eins og Kain sem var [...]
Biblíulestur 15. september – Hós 6.1–6
Hræsni og viðbrögð Drottins við henni 1Komið, hverfum aftur til Drottins því að hann reif sundur en mun lækna oss, hann særði en mun gera að sárunum. 2Hann lífgar oss [...]
Biblíulestur 14. september – 3Mós 24.17–22
17 Drepi maður mann skal hann tekinn af lífi. 18 Hver sem drepur skepnu skal bæta hana: Líf fyrir líf. 19 Þegar einhver maður veitir landa sínum áverka skal honum [...]