Biblíulestur – Annar sunnudagur í aðventu 7. desember – Mrk 13.31–37
Himinn og jörð munu líða undir lok en orð mín munu aldrei undir lok líða.
En þann dag eða stund veit enginn, hvorki englar á himni né sonurinn, enginn nema faðirinn. Gætið yðar, vakið! Þér vitið ekki nær tíminn er kominn. Svo er þetta sem maður fari úr landi, skilji við hús sitt og feli þjónum sínum umráðin, hverjum sitt verk. Dyraverðinum býður hann að vaka. Vakið því, þér vitið ekki nær húsbóndinn kemur, að kveldi, á miðnætti, í óttu eða dögun. Látið hann ekki finna yður sofandi þegar hann kemur allt í einu. Það sem ég segi yður, það segi ég öllum: Vakið!“
Biblíulestur 25. september – Okv 29.1-13
1Þeim sem oft hefur verið átalinn en þrjóskast við verður skyndilega hrundið og engin lækning fæst. 2Þegar réttlátum vex máttur gleðst þjóðin en þegar ranglátir drottna stynur þjóðin. 3Sá sem [...]
Biblíulestur 24. september – Jer 14.11–16
11 Drottinn sagði enn fremur við mig: Ekki biðja um að þessu fólki farnist vel. 12 Þegar þeir fasta hlusta ég ekki á kvein þeirra. Þegar þeir færa brennifórn eða [...]
Biblíulestur 23. september – 1Tím 1.12–17
12 Ég þakka honum sem mig styrkan gerði, Kristi Jesú, Drottni vorum, fyrir það að hann sýndi mér það traust að fela mér þjónustu, 13 mér sem fyrrum lastmælti honum, [...]
Biblíulestur 22. september – Ef 2.11–22
Eitt í Kristi 11 Þið skuluð því minnast þessa: Þið voruð upprunalega heiðingjar og kallaðir óumskornir af mönnum sem kalla sig umskorna og eru umskornir á holdi með höndum manna. [...]
Biblíulestur 21. september – Esk 33.12–20
12 En þú, mannssonur, segðu við landa þína: Réttlæti hins réttláta mun ekki bjarga honum daginn sem hann brýtur af sér. Ranglæti hins rangláta mun ekki heldur fella hann daginn [...]
Biblíulestur 20. september – Jer 31.7–14
7Svo segir Drottinn: Hrópið af gleði yfir Jakob, hyllið þjóð þjóðanna. Kunngjörið, lofsyngið og segið: Drottinn hefur bjargað þjóð sinni, þeim sem eftir eru af Ísrael. 8Ég flyt þá heim [...]