Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 3. ágúst – Mrk 8.1–9

Um þessar mundir bar enn svo við að mikill mannfjöldi var saman kominn og hafði ekkert til matar. Jesús kallar þá til sín lærisveinana og segir við þá: „Ég kenni í brjósti um mannfjöldann. Menn hafa nú verið hjá mér þrjá daga og hafa ekkert til matar. Láti ég þá fara fastandi heim til sín örmagnast þeir á leiðinni en sumir þeirra eru langt að.“
Þá svöruðu lærisveinarnir: „Hvar er hægt að fá brauð til að metta þetta fólk hér í óbyggðum?“
Hann spurði þá: „Hve mörg brauð hafið þið?“
Þeir sögðu: „Sjö.“
Þá bauð Jesús fólkinu að setjast á jörðina, tók brauðin sjö, gerði þakkir og braut þau og gaf lærisveinum sínum að þeir bæru þau fram. En þeir báru þau fram fyrir fólkið. Þeir höfðu og fáeina smáfiska. Hann bað Guð að blessa þá og bauð að einnig þeir skyldu bornir fram. Menn neyttu og urðu mettir. Síðan tóku lærisveinarnir saman leifarnar, sjö körfur. En þar voru um fjögur þúsund manns. Síðan lét hann fólkið fara.

Biblíulestur 6. ágúst – 2Kon 10.1-14

Endalok Akabsættar 1 Akab átti sjötíu syni í Samaríu. Jehú skrifaði nú bréf og sendi það til Samaríu, til höfðingjanna í Jesreel, til öldunganna og þeirra sem fóstruðu syni Akabs. [...]

Biblíulestur 5. ágúst – 2Kon 9.14-37

14 Þannig gerði Jehú Jósafatsson Nimsísonar samsæri gegn Jóram. En Jóram hafði varist við Ramót í Gíleað ásamt öllum Ísrael gegn Hasael Aramskonungi. 15 Jóram konungur hafði snúið heim til [...]

Biblíulestur 3. ágúst – Slm 73.13-28

13Til einskis hef ég haldið hjarta mínu hreinu og þvegið hendur mínar í sakleysi. 14Ég þjáist allan daginn og á hverjum morgni bíður mín hirting. 15Hefði ég hugsað: „Ég vil [...]

Biblíulestur 2. ágúst – 2Kon 9.1-13

Jehú smurður til konungs 1 Einu sinni kallaði spámaðurinn Elísa á einn af lærisveinum spámannanna og sagði við hann: „Bind upp kyrtil þinn, tak þessa olíukrús með þér og far [...]

Biblíulestur 1. ágúst – 2Kon 8.16-29

Jóram Júdakonungur 16 Á fimmta stjórnarári Jórams Akabssonar, konungs í Ísrael, á meðan Jósafat var enn Júdakonungur, varð Jóram Jósafatsson konungur.[ 17 Hann var þrjátíu og tveggja ára þegar hann [...]

Fara efst