Daglegur lestur2025-11-23T00:01:48+00:00

Biblíulestur – 2. ágúst – Slm 104.19–35

Þú gerðir tunglið, sem ákvarðar tíðirnar,
og sólina sem veit hvenær hún á að ganga til viðar.
Þú sendir myrkrið, þá verður nótt
og öll skógardýrin fara á stjá.
Ljónin öskra eftir bráð
og krefjast ætis af Guði.
Þegar sólin rís draga þau sig í hlé
og leggjast í bæli sín.
Þá fer maðurinn út til starfa sinna
og vinnur þar til kvöldar.
Hversu mörg eru verk þín, Drottinn?
Þú vannst þau öll af speki.
Jörðin er full af því sem þú hefur skapað.
Þar er hafið, mikið og vítt á alla vegu.
Þar er óteljandi grúi,
smá dýr og stór.
Þar fara skipin um
og Levjatan er þú hefur skapað til þess að leika sér þar.
Öll vona þau á þig
að þú gefir þeim fæðu þeirra á réttum tíma.
Þú gefur þeim og þau tína,
þú lýkur upp hendi þinni og þau mettast gæðum.
Þú byrgir auglit þitt, þá skelfast þau,
þú tekur aftur anda þeirra, þá andast þau
og hverfa aftur til moldarinnar.
Þú sendir út anda þinn, þá verða þau til
og þú endurnýjar ásjónu jarðar.
Dýrð Drottins vari að eilífu,
Drottinn gleðjist yfir verkum sínum,
hann sem lítur til jarðar svo að hún nötrar,
sem snertir við fjöllunum svo að úr þeim rýkur.
Ég vil ljóða um Drottin meðan lifi,
lofsyngja Guði mínum meðan ég er til.
Ó, að mál mitt mætti falla honum í geð.
Ég gleðst yfir Drottni.
Ó, að syndarar mættu hverfa af jörðinni
og óguðlegir ekki vera til framar.
Lofa þú Drottin, sála mín.
Hallelúja.

Biblíulestur 31. júlí – 2Kon 8.1-15

Enn um Elísa og konuna frá Súnem 1 Elísa sagði við móður drengsins er hann hafði lífgað: „Búðu þig til ferðar og farðu burt, þú og fjölskylda þín. Leitaðu hælis [...]

Biblíulestur 30. júlí – 2Kon 7.9-20

9 Síðan sögðu þeir hver við annan: „Þetta er ekki rétt af okkur. Þessi dagur er dagur gleðitíðinda en við þegjum. Ef við bíðum dögunar verðum við fundnir sekir. Komið [...]

Biblíulestur 27. júlí – Okv 24.23-34

23 Þessi spakmæli eru líka eftir spekinga: Hlutdrægni í dómi er röng. 24 Þeim sem segir við hinn seka: „Þú hefur rétt fyrir þér,“ honum formæla menn og þjóðir fordæma [...]

Biblíulestur 26. júlí – 2Kon 6.1-23

Elísa og týnda öxin 1 Einu sinni sögðu spámanna-lærisveinarnir við Elísa: „Herbergið, þar sem við sitjum frammi fyrir þér, er of þröngt fyrir okkur. 2 Við ætlum því að ganga [...]

Fara efst