Biblíulestur – 4. ágúst – 1Jóh 3.7–24
Börnin mín, látið engan villa ykkur. Sá sem iðkar réttlætið er réttlátur eins og Kristur er réttlátur. Hver sem syndgar heyrir djöflinum til því að djöfullinn hefur syndgað frá upphafi. Til þess birtist Guðs sonur að hann skyldi brjóta niður verk djöfulsins. Hver sem af Guði er fæddur syndgar ekki því að það sem Guð hefur í hann sáð varir í honum. Hann getur ekki syndgað af því að hann er fæddur af Guði. Af þessu má greina að börn Guðs og börn djöfulsins. Sá sem iðkar ekki réttlæti og elskar ekki bróður sinn heyrir ekki Guði til.
Því að þetta er sá boðskapur sem þið hafið heyrt frá upphafi: Við eigum að elska hvert annað. Ekki vera eins og Kain sem var af hinum vonda og myrti bróður sinn. Og af hverju myrti hann hann? Af því að verk hans voru vond en verk bróður hans góð.
Undrist ekki, systkin, þótt heimurinn hati ykkur. Við vitum að við erum komin yfir frá dauðanum til lífsins af því að við elskum bræður okkar og systur. Sá sem ekki elskar er áfram í dauðanum. Hver sem hatar bróður sinn eða systur er manndrápari og þið vitið að enginn manndrápari hefur eilíft líf í sér. Af því þekkjum við kærleikann að Jesús lét lífið fyrir okkur. Svo eigum við og að láta lífið hvert fyrir annað. Ef sá sem hefur heimsins gæði horfir á bróður sinn eða systur vera þurfandi og lýkur aftur hjarta sínu fyrir þeim, hvernig getur kærleikur til Guðs verið stöðugur í honum? Börnin mín, elskum ekki með tómum orðum heldur í verki og sannleika.
Af þessu munum við þekkja að við erum sannleikans megin og munum geta friðað hjörtu okkar frammi fyrir honum, hvað sem hjarta okkar kann að dæma okkur fyrir. Því að Guð er meiri en hjarta okkar og þekkir allt. Þið elskuðu, ef hjartað dæmir okkur ekki, þá höfum við djörfung til Guðs. Og hvað sem við biðjum um fáum við hjá honum af því að við höldum boðorð hans og gerum það sem honum er þóknanlegt. Og þetta er hans boðorð, að við skulum trúa á nafn sonar hans Jesú Krists og elska hvert annað, samkvæmt því sem hann hefur gefið okkur boðorð um. Sá sem heldur boðorð Guðs er stöðugur í Guði og Guð í honum. Að hann er stöðugur í okkur þekkjum við af andanum sem hann hefur gefið okkur.
Biblíulestur 12. ágúst – 2Kon 12.2-22
2 Á sjöunda stjórnarári Jehú varð Jóas konungur og hann ríkti fjörutíu ár í Jerúsalem. Móðir hans hét Sibja og var frá Beerseba. 3 Alla ævidaga sína gerði Jóas það [...]
Biblíulestur 11. ágúst – Matt 7.24-29
24 Hver sem heyrir þessi orð mín og breytir eftir þeim, sá er líkur hyggnum manni er byggði hús sitt á bjargi. 25 Nú skall á steypiregn, vatnið flæddi, stormar [...]
Biblíulestur 10. ágúst – Slm 74.1-11
1 Asafsmaskíl. Guð, hví hefur þú hafnað oss að fullu, hví rýkur reiði þín gegn gæsluhjörð þinni? 2Minnstu safnaðar þíns sem þú forðum leystir út þér til eignar, minnstu Síonarfjalls [...]
Biblíulestur 9. ágúst – 2Kon 11.17-12.1
11. kafli 17 Jójada gerði síðan sáttmála milli Drottins, konungsins og þjóðarinnar um að hún skyldi vera þjóð Drottins og einnig sáttmála[ milli konungsins og þjóðarinnar. 18 Því næst fór [...]
Biblíulestur 8. ágúst – 2Kon 11.1-16
Atalía drottning í Júda 1 Þegar Atalía, móðir Ahasía, sá að sonur hennar var dáinn tók hún til við að tortíma allri konungsættinni. 2 En Jóseba, dóttir Jórams konungs og [...]
Biblíulestur 7. ágúst – 2Kon 10.15-36
15 Þegar Jehú hélt áfram þaðan mætti hann Jónadab Rekabssyni sem hafði komið til móts við hann. Jehú heilsaði honum og sagði við hann: „Ert þú jafneinlægur við mig og [...]